Lyfjafræði MTK Flashcards
Almenn flokkun lyfja með verkun í MTK
- Svæfingarlyf (d. isoflurane)
- Verkjalyf (d. ópíöt, gabapentin, amitryptiline, duloxetine)
- Kvíðastillandi og róandi (bensódíazepín sambönd)
- Flogaveiklyf (carbamazepine, valproate)
- Geðrofslyf (clozapine, haloperidol)
- Þunglyndislyf (SSRI, SNRI, þríhringlaga)
- Örvandi lyf (metýlfenidat)
- Ofskynjunarlyf (LSD, MDMA – alsæla/helsæla)
- Lyf sem bæta vitræna getu í heilabilun (donezepil, memantine)
Hvað er glútamat?
- Glútamat er aðal örvandi boðefnið í MTK uþb 80% taugamóta og verkar á m.a. NMDA viðtaka
- Losað úr blöðrum við taugamót við boðspennu og veldur boðspennu í frálægri taugafrumu
- Hlutverk – langtíma mögnun á taugaboðum (LTP) og aðlögunarhæfni tauga/taugaenda
> Dæmi, minnistengingar, hjóla, borða, klæða sig og aðrar sjálfvirkar athafnir daglegs lífs
Hvað gera lyf með verkun á glútamat kerfið - NMDA viðtaka?
- Verka gegn oförvun í glútamat kerfinu
- Memantine blokkar jónagöngin vægt, notað í miðlungs og meðalsvæsnum Alzheimer – bætir færni í athöfnum daglegs lífs
- Ketamine NMDA hindri/blokki blokkar jónagöngin meira en memantine (gamalt svæfingarlyf) hefur bráða verkun gegn þunglyndi – talið örva myndun taugavaxtarhormónsins BDNF
- Fíkniefnið phencyclidine (PCP – englaryk) kröftugur NMDA viðtaka blokki veldur ofskynjunum og geðrofseinkennum
Hvað veldur oförvun í glútamat kerfinu og hvernig?
Talið að streita valdi oförvun í glútamat kerfinu leiði til rýrnunar á taugum. Þessar breytingar eru sjáanlegar í kvíða, þunglyndi og fíkn
Hvað er GABA?
> Gamma-Amino-Butiric-Acid
- GABA losað svipað og glútamat
- Er um 15-20% taugamóta í MTK
- Aðal hamlandi boðefnið í MTK (hamlar glútamat kerfinu) og er mikilvægt til hindra oförvun sem gerist t.d. við krampa
- Til bæði GABAA og GABAB viðtakar – GABAA jónatrópískur viðtaki
GABAA viðtaki
- Mörg róandi lyf og svefnlyf hafa hvetjandi áhrif á GABA virkni í heilanum og miðla þannig hamlandi - róandi og svefn áhrifum – sjá Benzodiapine agonists á mynd
- Bensólyf (benzodiapine d. Diazepam - Stesolid) og skyld lyf eins og Z-svefnlyfin (Imovane, Stilnoct) eru því bæði með sækni og virkni á GABA viðtakann
- Niðurstaðan en aukin hömlun á glútamatkerfið. Mikil hömlun = svefnáhrif
- Algengustu aukaverkanir eru sljóleiki, syfja, svimi, óstöðugleiki, drafandi tal og minnistruflanir
Dæmi um lyf sem auka áhrif GABA
- Benzódíazepín
- Svæfingarlyf
- Svefnlyf
- Barbitúrsýrur
- Alkóhól
- Hætta á ávanabindingu og fíkn
Hvar á Noradrenalín sér uppruna?
- Uppruni í locus coeruleus (LC) og liggur þaðan um limbíska kerfið (tilfinningar) og í framheila (mat og ákvarðanartaka)
Hvernig áhrif hefur Noradrenalín?
- NA hefur örvandi áhrif í MTK, eykur vökuvitund, einbeitingu og hækkar blóðþrýsting
- Aukin velta NA í miðtaugakerfi með lyfjum getur virkað gegn einkennum þunglyndis
- Algeng aukaverkun NA aukandi lyfja er því hækkaður blóðþrýstingur
Hvernig lyf auka Noradrenalín?
Þunglyndislyf
- hindra endurupptöku á NA – en óftast einnig serótónín (serotonin noradrenaline reuptake inhibitors -SNRI) venlafaxine, duloxetine, þríhringlaga þunglyndislyf- amitryptiline
Örvandi lyf (NA og DA aukning)
- gegn ofvirkni – metýlfenidat, atomoxetín
- Kókaín og amfetamín
Hvaða hlutverki gegnir Dópamín?
- Gegnir hlutverki í stjórnun og samhæfingu viðbragða allt frá einföldum hreyfingum upp í tilfinningaviðbrögð og hvatir
- Einnig áhrif á ýmsa vitræna starfsemi heilans eins og nám og minni
Hvað getur hrörnun á dópamínfrumum leitt til?
- Hrörnun á dópamínfrumum í substantia nigra leiðir til Parkinsons sjúkdóms en aukið magn dópmíns sést í geðklofa
Hvaða hlutverk hefur dópamín í limbíska hluta heilans?
- Dópamín í limbíska hluta heilans hefur hlutverk varðandi stjórn tilfinninga, hvatir, fíkn o.fl.
Lyf sem verka á dópamínkerfið
Lyf gegn Parkinson
- Dópamínagonistar – pramipexole
- MAO-B hemlar, rasagiline-selegilline
- COMT hemill, entacapone
- Levódópa forefni dópamíns
Þunglyndislyf
- bupropion (Wellbutrin, Zyban) einnig gegn reykingum, eykur DA
Geðrofslyf
- blokka sértækt DA viðtaka
Hvað er serótónín og hvaða hlutverk hefur það?
- Myndað úr amínósýrunni trypthophan (kalkúnn, kjúlli)
- Hefur margþætt hlutverk í heila og tengist stjórn á svefni - vökuvitund, verkjaskynjun, líkamshita, blóðþrýsting, matarlyst og virkni hormóna fyrir utan áhrif á geðslag