Geðrofslyf Flashcards
Hvað er dópamín og hvað gerir það
- Gegnir hlutverki í stjórnun og samhæfingu viðbragða allt frá einföldum hreyfingum upp í tilfinningaviðbrögð og hvatir
- Einnig áhrif á ýmsa vitræna starfsemi heilans eins og nám og minni
Hvaða taugaboðefni er of mikið af í Geðrofssjúkdómum ?
of mikið af dópamíni
Hvaða taugaboðefni er of mikið af í Maníu?
of mikið af dópamíni og noradrenalíni
Hrörnun á hverju leiðir til Parkinson?
Hrörnun á dópamínfrumum í sortukjarna leiðir til Parkinsons sjúkdóms en
Hvort verður skortur eða aukning á dópamíni í geðklofa?
Aukning
Hvaða taugaboðefni og hvar, gegnir hlutverki varðandi stjórn tilfinninga, hvatir, fíkn o.fl?
Dópamín í limbíska hluta heilans
Hvar er útbreiðsla dópamínvirka taugabrauta í heila?
og hvað hefur það stjórn á?
- Mest í djúpkjörnum (basal ganglia) og töluvert í framhluta heilabarkar
- Hefur áhrif á stjórn hreyfinga, atferli, skipulag hugsunar og stjórn hormóna (vaxtarhormón, prólaktiń)
Dópamínviðtakar í MTK…
- Eru allir G-proteintengdir
- D1-fjölskyldan (undirflokkar: D1 og D5, D1 viðtakar útbreiddastir allra D-viðtaka í MTK)
- D2-fjölskyldan, mikilvægari lyfjafræðiðlega séð (fækkar í fíkn) (undirflokkar: D2, D3 og D4
Hvað einkennir geðrof?
Alvarleg truflun á hugsun og skynjun þar sem einstaklingur missir raunveruleikatengsl.
Getur komið fram í fjölda kvilla og verið tímabundið eða langvinnt ástand.
Talið að ca 3/100 upplifi geðrof ehtíman ö há tíðni sjálfsmorða og félagslegra vandamála tengt geðrofi.
Hver eru jákvæð einkenni geðrofs?
- Ranghugmyndir
- ofskynjanir
- hugsanatruflanir
- óreiðukennd og óeðlileg hegðun
- Stjarfi bæði í hugsun og hreyfingum
Hver eru neikvæð einkenni geðrofs?
- Félagsfælni
- Flatar tilfinningar
- Óyndi, geta ekki glaðst - svipbrigðaleysi
- Tregða við að sinna daglegum athöfnum
Hver er Dópamínkenning geðklofa?
Ofgnótt af dópamíni á ákv svæðum heilans.
Hægt að framkalla gðerof með því að gefa lyf sem örva losun dópamíns t.d amfetamín
Hver er Glútamatkenning geðklofa?
Vanvirkni í glútamatkerfinu.
Hægt er að framkalla geðrof með því að gefa lyf sem blokka starfsemi glútamatviðtakans NMDA. Dæmi er ofskynjunarlyfið englaryk eða phencyclidine (PCP)
Í geðrofssjúkdómum er algengt að einkenni þróist af stigi
- Hvernig lýsir það sér snemma í ferlinu ?
- Einbeitingaerfiðleikar
- Depurðareinkenni
- Svefntruflanir
- Vaxandi tortryggni gagnvart fólki / umhverfi
- Kvíði
- Félagsleg einangrun
- Sérkennilegar hugmyndir (eh óraunverulegt)
Hvað gerir geðrofslyfið N05A
Blokka sértækt DA viðtaka og koma þannig í veg fyrir ofvirkni dópamíns. Eru dópamín antagónistar þ.e hafa sækni í viðtakann en ekki virkni.
Mismikil binding eftir lyfjum og flokkum
Dæmi: Clozapine og forðalyfið Paliperidonum palmitat sem má gefa í mánaðarlegum sprautum.
Helstu lyf - fyrsta kynslóð
* Hvaða lyf?
* Verkunarháttur?
* helstu aukaverkanir?
* í hvaða formi?
- Chlorpromazine (ekki mikið nota í dag) og Haloperidol (Haldol)
- Verkunarháttur: Öflugur D2 viðtakablokki sem hefur miðlæga verkun og hefur í ráðlögðum skömmtum litla alfa-1 andadrenvirka verkun og enga andhistamín - eða andkólínvirka verkun
- Aukaverkanir: utanstrýtuáhrif á hreyfingu (truflun á vöðvaspennu, hvíldaróþol, Parkinsoneinkenni). Hækkun prólaktińs
- Form: til sem stungulyf og oft notað til að sprauta fólk niður úr geðrofi
Helstu lyf - önnur kynslóð
* Hvaða lyf?
* Aukaverkanir?
* Kostur og galli
- Clozapine: virkar á fjölda viðtaka og hefur væga dópamín-viðtakahömlun á D1, D2, D3 og D5 viðtaka, en sýnir mikla sækni í D4 viðtaka
- Aukaverkanir: hvítkornafæð => fylgjast þarf með blóðmynd, þyngdaraukning, syfja, slæving, sundl, hraðtaktur, hægðatregða
*Kostur: Verkar gegn jákvæðum einkennum þegar önnur lyf duga ekki af annarri kynslóð - Galli: Hvað það verkar á mörg viðtakakerfi => fleiri aukaverkanir
- Aripíprazól: gert hefur verið ráð fyrir að áhrif þess á geðklofa og geðhvarfasýki 1 séu vegna örvunar á hluta á dópamín D2 og serótónín 5-HT1A viðtaka og vegna hömlunar serótónín 5-HT2A viðtaka
- Aukaverkanir: almennt þær sömu og af hinu lyfjunum s.s utanstrýtueinkenni, höfuðverkur, svefnleysi, ógelði
- Kostur: almennt minni aukaverkanir en af hinum atypicals. oft notað hjá börnum
- Galli: ekki eins öflugt, stundum notað með til að lækka skammta á hinu lyfinu
það sem vert er að hafa í huga með meðferð
- Sjúkdómsinnsæi þeirra sem þjást af geðklofa er oft mjög skert og stundum ekkert. Nærgætni er því gulls í gildi þegar við sinnum þessum sjúklingum
- þá henta forðalyf oft best þar sem sjúlingar skynja ekki að þeir þurfa á meðferð að halda ogmeðferðarheldni þeirra því oft léleg.
- þessi lyf eru nokkurn tíma að ná fullri virkni en virknin helst jafnframt í nokkurn tíma eftir að töku er hætt.
Önnur not/ábendingar geðrofslyfja
- Við geðhvarfasýki (bipolar sjúkdómi) - oflæti
- Við hegðunarvandamálum hjá börnum
- Sem viðbótarmeðferð við kvíða/svefnvandamálum (quetapinum)