Skýringar á útbreiðslu heilbrigðisvandamála Flashcards
Hverjar eru skýringar á aldursmuni útbreiðslu heilbrigðisvandamála?
- Færri smitleiðir eldra fólks
- Eldra fólk hefur uppsafnað áunnið ónæmi frá fyrri tíð
- Áhættuhegðun (áhættuþættir) er aldursbundin
- Eldra fólk hefur stundum krónískt form veikinda í stað hins bráða (acute) forms
- Eldra fólk annast sig ekki nógu vel
- Lakari aðgangur eldra fólks að heilbrigðisþjónustu
- Fátækt eldra fólks
- Það tekur langan tíma fyrir krónísk veikindi að þróast
Hverjar eru 7 skýringar á aldursmuni á útbreiðslu geðræns vanda?
- Fjárhagsskýringar (economic hardship)
- Atvinnuskýring (employment, job quality)
- Fjölskylduskýringar (hjúskapur og börn)
- Menntunarskýring
- Heilsufars- og líkamsgetuskýringar
- Stjórnrótarskýring
- Brottfallskýring (félagslegt val)
Hjá hvoru kyninu er algengi skammvinnra sjúkdóma og kvilla meira í heild sinni?
Hærra meðal kvenna
Hvort kynið fær frekar lífhættulega sjúkdóma og verða frekar fyrir alvarlegum slysum ?
Karlar
Hjá hverjum eru geðsjúkdómar algengari?
Hærra meðal drengja en á fullorðinsárum algengið hærra meðal kvenna
Hjá hvoru kyninu eru kvíðaraskanir og þunglyndissjúkdómar algengari ?
En persónuleikaraskanir og efnafíkn?
Kvíði og þunglyndi algengara hjá konum en persónuleikaraskanri og efnafíkn hjá körlum
Hvort kynið er líklegra til að upplifa sálræna vanlíðan (kvíði-, þunglyndis og reiðiseinkenni)?
Konur líklegri
Hvernig getur stéttarskipting haft áhrif á veikindi / sjúkdóma?
- Algengri skammvinnra og langvinnra sjúkdóma og kvilla lamennt hærra í lægri stéttum og meðal einstaklinga með minni menntun og tekjur
- Sálræn vanlíðan er meiri meðal einstaklinga í lægri stéttum og einstaklinga með minni menntun og tekjur
útskýrðu Efnahagslegar skýringar á stéttamuni á útbreiðslu heilbrigðisvandamála ?
Lakari lífskjör í efri stéttum bitna á heilsufari, s.s lakari húsnæði (þrengsli, raki, kuldi), hættulegra íbúahverfi (mengun, slysahættur), ódýrara (og óholara) mataræði og ófullnægjandi heilbrigðisþjónusta
útskýrðu Lífstílsskýringar á stéttamuni á útbreiðslu heilbrigðisvandamála ?
Heilsutengd hegðun (health behavior) og veikindahegðun (illness
behavior) eru óhagstæðari meðal lægri stétta. Sumur höfundar halda
því fram að óhagstæður lífstíll í lægri stéttum sé hluti af fátækramenningu
(culture of poverty)
Útskýrðu Álagsskýringar á stéttamuni á útbreiðslu heilbrigðisvandamála ?
Meira álag (stress) meðal lægri stétta og/eða erfiðara að vinna bug á álaginu
meðal lægri stéttanna, s.s.vegna óhagstæðra viðhorfa og úrræða, eða minni
stuðnings frá öðrum
Útskýrðu skýringar útfrá vinnuumhverfi á stéttamuni á útbreiðslu heilbrigðisvandamála ?
Einstaklingar í verkalýðsstétt starfa frekar en aðrir í hættulegu eða heilsuspillandi vinnuumhverfi (vinna frekar með hættuleg tæki, eru frekar í slæmum vinnustellingum og verða frekar fyrir skaðlegum kulda/hita, raka, ryki, geislun, gufum, vökvum og
föstum efnum
Hvort eru langvinnir sjúkdómar og geðsjúkdómar algengari hjá giftum eða ógiftum og afhverju ?
Algengari hjá ógiftum
- félagslegt val
- Minna um efnahagserfiðleika og félagslega einangrun meðal giftra
- meiri félagslegur stuðningur meðal giftra
- meira taumhaldm meðal giftra
Hvort eru barnaforeldrar eða þeir sem eiga engin börn í frekari áhættu á sálrænni vanlíðan og afh?
Barnaforeldrar upplifa frekar sálræna vanlíðan en aðrir foreldrar (Ekki síst mæður yngri barna)
- fjárhagserfiðleikar
- minni tengsl við maka / sambýlismann og minni makastuðningur
- álag vegna foreldrahlutverks, sem bætist við annað álag sem fullorðnir upplifa í öðrum hlutverkur