Lífeðlisfræði brjóstagjafara Flashcards
Hvað þarf að vera til staðar svo mjólkurframleiðsla geti átt sér stað?
- Kirtilvefur
- Virkar taugar og taugaboð
- Nauðsynleg hormón
- Virk örvun
- mjólkun / losun mjólkur
Hvað er Hypoplasia?
Lítill kirtilvefur = framleiða ekki nóg
- sjaldgæft (1-5% kvenna)
Skipta aðgerðir á brjóstum máli þegar kemur að brjóstagjöf?
Brjóstaminnkun getur komið í veg fyrir að kona geti gefið brjóst þar sem stundum er skorið taug í sundur sem við þurfum til að framleiða mjólkina. Það er oft meiri þrýstingu hjá konum með púða en geta yfirleitt gefið.
Hvað er Prólaktín?
- Hormón sem myndar mjólkina
- Losnar frá fremi hluta heiladinguls þegar geirvarta er örvuð
- þegar fylgjan fæðist þá hættir prógesterónframleiðsla fylgjunnar sem hamlar Prólaktínlosun á meðgöngu og prólaktínhormónið skýst upp í blóði og það opnast viðtakar í brjóstinu. því mikilvægt að barnið fari sem fyrst á brjóst
- Hæst í blóði á nóttunni. Hjálpar mömmunni að slaka á og hvílast (þannig að hún hvílist þó hún sé að gefa brjóst á nóttunni)
- því oftar og meira sem barnið sýgur því meira prólaktín losnar -> meiri mjólk myndast
Hvað er Oxýtósín?
- Ástarhormónið
- Hormónið sem losar mjólkina úr brjóstunum
- Losnar þegar móðir heyrir barnið sitt gráta, hugsar um og snertir það og þegar barnið sýgur
- Let down reflex (þegar það losnar)
Hvað hvetur til dópamín losunar í heila hjá mæðrum?
Þegar barnið sýgur brjóstið og hnoðast með hendurnar á brjóstið - verður mikil losun á oxytósín og prólaktín sem hvetur til dópamínlosunar í heila -> vellíðunartilfinning
Hvað er mjólkurmyndunarferlið ?
Ferlið frá þroskun mjólkurkirtlanna yfir í það að framleiða mjólk, þar til lokum brjóstagjafar þ.e hætta framleiðslu á mjólk þegar barnið hættir á brjósti
- er í 3 ferlum
Hvað er Mjólkurmyndunarferli 1?
- Mikilvægt ferli og undirstaðan fyrir mjólkurframleiðslu
- Undirbúningur brjóstanna á meðgöngu
- Stækkun brjósta mismunandi og er talin endurspegla þroska kirtilvefs sem er oft fyrsta einkenni þungunar
- Hægt að finna lactósa í þvagi á meðgöngu - vegna aukinnar virkni í kirtilvef
Hvað er Mjólkurmyndunarferli 2 ?
- Viðkvæmasta þrepið í öllu ferlinu
- Broddur til staðar við fæðingu og framleiða brjóstin brodd þar til lactogenesis 2 er hafið
- við 36klst eftir fæðingu er mjólkurmagn ca. 400ml
- þetta ferli er hormónastýrt í upphafi en stjórnast síðan af framboði og eftirspurn
- Mæður sem ekki hefja brjóstagjöf fara í gegnum mjólkurmyndunarferli 2 v/hormónaáhrifa
- Upphaf brjóstagjafar skiptir miklu máli fyrir framítðarframleiðslu
- Framleiðsla á 6 degi eftir fæðingu marktækt samhangandi við framleiðslu á 6 viku eða um 750-800 ml/sól. Magn eykst lítið eftir 6 mán aldur (um 130 ml að meðaltali)
Áhættuþættir fyrir seinkuðu Lactogenesis 2:
- ?offita
- ?keisari, ?langdregin fæðing, ?áhaldafæðing
- Aðskilnaður móður og barns
- Mænudeyfing og verkjalyf?
- Streita
- Blæðing eftir fæðingu
Hvað er Mjólkurmyndunarferli 3?
- Eftir u.þ.b mánuð breytist samsetning mjólkurinnar
- Brjóstin aðlaga framleiðslu að matarlyst barnsins / eftirspurninni
- Framleiðslu stýrt af staðbundnum þáttum inni í brjóstinu (autocrine) sem er öfugt við innkirtlastjórnun (endocrine)
- Innkirtlakerfið endurspeglar hámarksframleiðslugetu hverrar konu en staðbundna kerfið kemur jafnvægi á framboð og eftirspurn
Hvaða breyting verður á brjóstum og geirvörtum á meðgöngu?
- Eymsli í brjóstum oft fyrsta einkenni þungunar
- Brjóstin stækka, þyngjast, verða æðaber og aum
- Mjólkurkirtlar og mjólkurgangar stækka og jafnvel fjölga sér
- Geirvörtur stækka, dökkna og standa meira út
- Brjóstin tilbúin að framleiða á 5.mánuði
- Eðlilegt að broddur leki á meðgöngu
- Stærð skiptir EKKI máli
- Lögun á geirvörtu skiptir EKKI máli
Hvað eru Montgomery kirtlar og hvað gera þeir?
- litlu ,,bólurnar’’ í kringum geirvörtu
- þeir seyta olíukenndum vessa sem verndar vörtur fyrir þurrki og sprungum
- sæt lykt af þeim eins og legvatni þannig barnið finnur lyktina á bringu móður ,,sensual guide’’
Hverjir eru kostir við brjóstagjöf?
- Minni líkur á vöggudauða
- Brjóstamjólk tekur mið af þörfum barnsins: fyrirburi, léttburi, fullburi, veikt barn
- Lág í fitu og proteinum en mjög kolvetnarík
- Protein í mjólkinni örverudrepandi og stuðla að og byggja upp heilbrigða magaflóru barnsins
- Auðmeltanleg
- Vörn gegn sýkingum s.s eyrnabólgum, öndunarfærasýkingum, magasýkingum ofl
- Brjóstamjólkin alltaf fersk, við rétt hitastig, næturgjafir auðveldari, engin þrif og sótthreinsun, kostar ekki peninga