Fæðingareynsla - áhrif á líðan móður, barns og fjölskyldu Flashcards
Hvað er fyrsta stig fæðingar?
það tímabil sem varir frá upphafi reglulegra samdrátta í legi þar til útvíkkun og þynningu legháls er lokið
Hver er meðallengd 1.stigs fæðingar?
Frumbyrju: 12 klst
Fjölbyrjur: 6 klst
yfirleitt lengra hjá konum sem eru að einast sitt fyrsta barn
Hvað getur haft áhrif á lengd fæðingar?
- Hvort vefir í leginu eru mjúkir eða harðir
- Andlega líðan (Streituhormónið virðsti hafa hamlandi áhrif á framleiðslu oxytocin sem hvetur áfram fæðingu)
Hverjir eru tveir fasar 1.stigs fæðingar?
Latent fasinn
Active fasinn
Hvað gerist í lantent fasanum í 1.stigi fæðingar?
'’Rólegt phase’’
- Fyrst og fremst þynning á leghálsi
- Mjög hæg útvíkkun eða framgangur barns
Hvað gerist í Active fasanum í 1.stigi fæðingar?
- Hröð útvíkkun og framgangur barns.
- Stut milli samdrátta og verkir vara í 1mín
- Legháls orðinn stuttur og þunnur
Hvað er 2.stig fæðingar?
Tímabil frá því að útvíkkun er lokið þar til barnið er fætt
Hver er meðaltímalegnd 2.stigs fæðingar?
Frumbyrjur: 1 klst
Fjölbyrjur: 20 mín
Hvað er axlarklemma ?
þegar efri öxlin festist bak við lífbeinsbogann. það er hætta á súrefnisskort hjá barninu
Hvað er spangarskurður?
Það er þegar spöngn er klippt af eh ástæðu. Reynt að forðast þetta í dag og frekar leyft að rifna náttúrulega því það er sársaukafyllra að klippa og það grær verr.
Stundum þarf samt að gera þetta t.d þegar það er sogklukkufæðing, fyrirburar og axlarklemma eða stórbörn til að minna þrýsting
Hvað er 3.stig fæðingar ?
Tímabilið frá því að barnið fæðist þar til fylgjan er fædd.
- Fylgjan losnar yfirleitt við legsamdrætti eða minnkun legs u.þ.b 5-7mín eftir fæðingu
- Oxytocin (Samdráttarhormón), leg dregst saman og þrýstir fylgjunni frá
- Stundum grær hún inni í vegginn og þarf þá að sækja hana (ALLA !)
Hverjar eru ástæður áhættufæðinga?
KUNNA
- Axlarklemma: 0,2-3% tilfella, skyndilegt ástand. Reynt að þrýsta eð snúa barninu til að það geti fæðst. í versta falli þarf að brjóta viðbeinið hjá barninu til að koma í veg fyrir súrefnisskort
- Fyriburafæðingar: Minna þroskuð börn, erfiðara að vera á brjósti
- Framfallinn naflastrengur: slidear framhjá höfði barnsins => hætta á klemmu => áhrif á mettun. Sérstök áhætta ef það er mikið legvatn og barnið hefur ekki skorðast þegar legvatnið fer. þá má konan ekki vera á fótum eftir að legvatnið fer og eiga að hringja á sjúkrabíl strax
- Fylgjulos: Hluti eða öll fylgjan losnar áður en barnið fæðist. Hættulegt fyrir móður og barn. Sést oft streita hjá barninu á EKG
- Fyrirsæt fylgja: Fylgja fyrir fæðingaropi alveg eða hluta til
- Legbrestur
- Keisari: Fer eftir hvernig keisarinn er (Bráða, bjöllu eða val). Ýmsar ástæður fyrir þessu eins og sjúkdómar, fyrirstæ fylgja, sýkingar (herpes) ofl
- Tangar og sogklukkufæðingar: stundum þarf ytri krafta t.d ef fæðing er að ganga hægt
Hvert er markmið verkjameðferðar í fæðingu?
- Að konan skynji sig hafa stjórn á aðstæðum í fæðingunni
- Að konan eigi kost á vali verkjameðferðar miðað við hennar viðhorf og líðan
- Að konan verði sátt við fæðingarreynsluna
Hvaða þættir geta hafa áhrif á skynjun og túlkun kvenna á sársauka?
- Menning
- Andleg líðan
- Fyrri reynsla (t.d hafa konur sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi sagt fra því að hvatningarorð fólks í fæðingu hafa minnt á ofbeldið)
- Undirbúningur fyrir fæðingu (námskeið t.d)
- Stuðningur í fæðingu
Hverjar eru helstu leiðir til þess að draga úr sársauka /verkjum í fæðinugu?
Verkjameðferð án lyfja:
- Fræðsla / leiðbeiningar / almennur stuðningur
- Slökun, öndun, dáleiðsla (hypnobirt)
- Nudd (strokur og þrýstipunktanudd)
- Stuðningsaðilar: snerting, samkennd
- Rólegt, hlýlegt umhverfi
- Vatn