Frávik í sængurlegu - helstu heilsufarsvandamál kvenna e. fæðingu Flashcards
Hvað er óeðlileg blæðing eftir fæðingu bæði almennt og samkvæmt lsh?
- 500 ml blæðing eftir vaginal fæðingu en
- 1000 ml eftir keisarafæðingu
- 800 ml => blæðing samkvæmt lsh
- 1500 ml => alvarleg blæðing samkvæmt lsh
Hvenær verður fyrsta stigs blæðing?
Verður snemma þ.e. innan við 24 tíma frá fæðingu (akút blæðing)
- Tíðni um 6%
- Mikil blæðing frá því svæði sem fylgjan er
Hvenær verður 2 stigs blæðing?
Verður seint þ.e. 24 klst - vikum eftir fæðingu
- Tíðni 1-3%
- hægur samdráttur legs
Hver eru óeðlileg blæðing/einkenni
- Blóðmissir (sbr. skilgr.) ásamt einu eða fleirum eftirfarandi einkenna:
o óreglulegur og/eða hraður púls /bþ.fall
o yfirliðatilfinning/svimi
o Þróttleysi, sljó
o sviti/svöl, köld húð
o eirðarleysi/óróleiki og/eða kvíði
o fölleit húð
o ógleði, sjóntruflanir,
o Leg mjúkt eða stækkandi
Helstu áhættuþættir/orsakir fyrir óeðlilegum blæðingum í kjölfar fæðingar:
Spennuleysi í legi/ lélegur tónus (uterine atony) (80-90%)
- Langdregin fæðing og notkum syntocinon
- Ofþensla á legi
- Mikil fjölbyrja
- Mikil notkun deyfi- eða svæfingalyfja
- Fyrri saga um ,,uterine atony‘‘
- Þvagteppa/full þvagbllaðra
- Hröð fæðing (3 klst eða minna)
- Vefjaskaði/trauma vegna inngripa (s.s. sogklukku, tangar eða keisara)
- Hluti af fylgju eða belgjum verður eftir
- Meiðsli á fæðingarvegi s.s. hematoma
- Legveggur rifnar : Sjalgæft, yfirleitt útaf veikleika í legveggnum
- Leg snýst við: Þarf að svæfa konuna, grípa strax inn í, getur gerst við fæðingu fylgju
- Blóðstorkuvandamál
Helstu áhættuþættir/orsakir fyrir síðbðuinni blæðingu/annars stigs eftir fyrsta sólarhringinn
- hlutar af fylgju/belgjum afa orðið eftir
- ,,subinvolution‘‘
- ,,endometritis‘‘/ sýking
Óeðlileg blæðing eftir fæðingu meðferð/viðbrögð
- Kalla á aðstoð ljósmóður, láta vakthafandi lækni vita
- Taka á legi og halda vel við það. Meta orsök blæðingar, taka lífsmörk.
- Gefa inj. Methergin 0,2 mg í æð ef konan er með nál annars í vöðva (Ath! ? frábendingar).
- Gefa T. Cytotek 800 microgr. Pr/rectum.
- Setja upp æðalegg (venflow nál) og draga blóð í status og BKS.
- Setja upp syntocinon dreypi (inj. Syntocinon 20 AE í 500 ml. NaCl) gefið á 2 tímum.
- Setja upp vökva inf.Ringer acetas 1000 ml. láta renna hratt inn.
- Taka lífsmörk – meta meðvitundarástand konu. - Ef hún er lág í blóðþrýstingi þá steypa henni og gefa súrefni í nös
- Tæma þvagblöðru. Setja upp foley þvaglegg.
- Læknir skoðar konu m.t.t. áverka í fæðingavegi eða kvið. (hafa gott ljós, stoðir og áhöld)
- Ath storkuþætti og áhættuþætti
- Skoða fylgju og belgi m.t.t. hvort vanti fylgjuhluta eða finna megi orsök blæðingar.
- Meta magn blæðingar (vigta-mæla)
-Ef blæðing er > 1500 ml => - Mjög náið eftirlit=> konan tengd við mónitor:
- Súrefnismettunarmælir,
- Blóðþrýstimælir
- EKG
- Stöðugt fylgst með HT, BÞ – tíðar mælingar + skráning
- Þvagleggur settur upp-> fylgst með þvagútsk. + haldin vökvaskrá
- Gefa inf. Voluven 60mg/ml, 500ml
- E.t.v. Gefa neyðarblóð
- Ath storkupróf
- Kalla á svæfingalækni
- Ef meðferð dugar ekki => Inj. Prostinfenem 1 ml (0,25mg/ml) gefið í vöðva eða beint í leg. Endurt. má á 15 – 90mín fresti (hámarks heildarmagn: 2mg eða 8amp.)
- Meta heildarblæðingu reglulega og halda konu og aðstandandendum upplýstum um ástand og aðgerðir
- Halda góða skráningu og skrá í Atvikaskráningu
Skilgreining sýkinga eftir fæðingu/fósturlát?
- líkamshiti yfir 38°í 24 klst og undir 10 daga eftir fæðingu eða fósturlát sem stendur yfir í 2 sólarhringa eða meira
Þættir sem almennt gera konur móttækilegri/líklegri til að fá sýkingar:
- saga um fyrri sýkingar
- sykursýki
- alkóhólistar/lyfjafíklar
- skert ónæmissvörun
- anemia
- vannæring
Þættir tengdir fæðingu sem auka líkur á sýkingu :
- Keisari
- PROM (legvatn fer snemma í fæðingu)
- Langdregin fæðing
- inngrip
- Óeðlilegar blæðingar
- Vefjarof/trauma/hematom
- Sýkingar á meðgöngu
Dæmi um sýkingar eftir fæðingu:
o Endometritis/ Legbolssýking - hiti, flensilík einkenni, konan slöpp, kemur vond lykt af útferð
o Sýking í sári, t.d. í spangarskurði eða keisarask.
o Þvagfærasýkingar
o Mastitis/ sýking í brjóstum
- Er roði? Eru hnúðar, alltaf að skoða þau
Thromboemboli/blóðsegamyndun orsök/áhættuþættir
Bólgubreytinga sem verða á æðaveggjum hindra eðlilegt blóðrennsli og veldur æðaþrengslum/stíflu. Vegna aukinna storknunartilhneigingar á meðgöngu og eftir fæðingu =>aukin hætta á Blóðsega- eða blóðtappamyndun . Hættulegast ef djúpvenu thrombosa=> hætta á lungnaembóli.
Hverjir eru áhættuhópar fyrir blóðsegamyndun?
- Keisarafæðingar
- Saga um blóðtappa eða æðahnútar til staðar
- Ofþyngd konu
- Aldur konu >35
- Fjölbyrja
- Reykingar
- Langvarandi rúmlega/kyrrseta
Vandamál tengd slökum grindarbotni og/ eða spangaráverka:
- Þvagleki: Eðlilegt fyrstu dagana en ef áframhaldandi vandamál leita hjálpar
- Hægðaleki
- Legsig, blöðrusig, endaþarmssig
- Verkir og óþægindi við samfarir
Hver er munurinn á sængurkvennagráti, fæðingarþunglyndi og sturlun?
Sængurkvennagrátur, baby blues
- tíðni ca 70%
- eðlilegt ástand
Fæðingaþunglyndi,
- byrjar yfirleitt innan við mánuð frá fæðingu.
- Tíðni ca. 10-15% kvenna
- Vanlíðan farin að hafa veruleg áhrif á getu konu til að annast barnið og eigin þarfir
Sturlun/psychosis:- (1:1000)
- kemur yfirleitt fram innan nokkurra daga eða vikna frá fæðingu barns.
- Vanlíðan óbærileg og konan hættuleg sér og barninu, einkennist m.a. af ranghugmyndum, ofsjónum og ofheyrnum, bipolar einkennum o. fl.