Endurhæfing og bataferli alvarlegra geðsjúkra (10.nóv) Flashcards
Hvert er markmið endurhæfingar eftir geðrof?
- Að hindra eða draga úr áhrifum sjúkdóms og fötlunar
- Að auka lífsgæði einstaklings og fjölskyldu hans
Mikilvægi fyrir bata er….?
- Að hafa aðgang að meðferðaraðila og njóta meðferðarsambands
- Að hafa aðgang að atvinnu með stuðningi
- Að fá faglega hjálp við að bregðast við veikindaköstum og halda niðri sjúkdómi
- Að fá meðferð við þunglyndi og vímuefnavanda þegar þess er þörf
- Að fjölskyldan fái stuðning og meðferð
- Að fá viðeigandi lyfjameðferð
Hver er mikilvægur grundvöllur bata?
- Endurhæfing gagnast best fari hún fram í samfélaginu
- Sjúkl verður að eiga sér heimili: ásættanlegt að hans mati, öruggt, fjárhagslega viðráðanlegt
- Verður að vera fjárhagslega sjálfstæður
Hvernig er meðferð við geðklofa?
- Lyf gegn geðrofi
- Önnur lyf
- Sállæknandi meðferð
> Dregur úr sjúkdómseinkennum: jákvæðum einkennum, neikvæðum einkennum, geðsveiflum (lyndisröskun), vitsmunalegri skerðingu
Eflir heilsu og lífsgæði: virkni til náms og starfs, sjálfstæði í búsetu og félagslífi, líkamleg heilsa, þátttaka í félagslífi
Hver er önnur meðferð við geðklofa?
- þjálfun í félagslegri færni
- aðstoð við ADL og búsetu
- fjölskyldustuðningur og meðferð
- að hafa málastjóra (case management)
> Dregur úr afleiðingum sjúkdóms: afleiðingum starfrænna truflana, álagi á fjölskyldur, hindrunum til félagslífs, kostnaði við heilbrigðisþjónustu
Eflir heilsu og lífsgæði: virkni til náms og starfs, sjálfstæði í búsetu og félagslífi, líkamleg heilsa, þátttaka í félagslífi
Hvernig er unnið gegn óæskilegum afleiðingum sjúkdómsins?
- Fylgst með og brugðist við aukaverkunum lyfja
- Lyfjameðferð stýrt með sjúkl
- Hvatt til lífstílsbreytinga
> Dregur úr afleiðingum sjúkdóms: aukaverkanir geðlyfja, heilsufarslegar afleiðingar sjúkdóms, fjárhagslegur kostnaður
Eflir heilsu og lífsgæði: virkni til náms og starfs, sjálfstæði í búsetu og félagslífi, líkamleg heilsa, þátttaka í félagslífi
Hvaða þjónusta þarf að vera til staðar?
- Aðgengi að málastjóra um langan tíma
- Endurhæfingarmiðstöðvar
- Tilboð um sammanlega nærveru (notendastarf eða sjálfshjálparvinna)
- Húsnæðisþjónusta
- Atvinnumöguleikar og þjálfun
- Tækifæri til menntunar
- Bráðaþjónusta
Hverju felst geðræn endurhæfing?
- Örvun til félagslífs
- Menntun og upplýsingu
- Hvatningu til virkni
- Þjálfun varðandi hegðun og framkomu
- vitrænni þjálfun
Í hverju felst bati?
- Að eiga sér vonir er mikilvægur þáttur í bataferlinu
- Bati frá alvarlegum geðsjúkdómi felst í að sjúkl sé fær um að lifa, vinna, læra og taka (fullan) þátt í samfélaginu
- Batinn er persónulegt þroska og lækningaferli sem gerir sjúkl mögulegt að lifa og starfa í þeim samfélagslegu aðstæðum sem hann kýs sjálfur og sem gera honum fært að njóta sín þrátt fyrir fötlun sína
Hvernig virkar hjúkrunarmatið ?
- Heildstætti geðhjúkrunarfræðilegt mat veitir upplýsingar sem gera mögulegt að sjúkl nái sem mestu mörulegu virkni (njóti sín að fullu)
- Miklu varðar að greina vonir, væntingar og styrkleika sem gera sjúklingum fært að takast á við veikindin
Hver eru einkenni og afleiðingar sjúkdómsins?
- Taka þarf tilllit til einkenna sjúkdómsins: geðrofseinkenna og neikvæðra einkenna
- Einmannaleiki og félagsleg einangrun eru afleiðingar sjúkdómsins og viðbrögð sjúklingsins við sjúkdómnum og hugsanleg meðferð
Hvernig á hjúkrunargreiningin að vera?
Þarf að innihalda greiningu á líkamlegum, tilfinningalegum og vitsmunalegum þjónustuþörfum sjúklingsins. Hvaða þjónustuþarfir þarf að uppfylla
- til að sjúkl geti lifað og starfað í samfélaginu
- til að bataferlið geti haldið áfram
Afhverju er mikilvægt að veita fjölskyldu og aðstandendum stuðning?
- þeir geta greint þarfir og hvatt sjúkl ti að taka þátt í meðferð
- Hjúkrunarfræðingurinn ætti að líta á fjölsk sem þátttakendur í endurhæfingunni og skipuleggja regluleg samskipti við nánustu fjölsk
Hverjir eru meðferðaraðilar og hvert er hlutverk þeirra?
Meðferðaraðilar (hjúkrunarfræðingar) ættu að taka sér leiðandi hlutverk í að kalla eftir og skapa þau samfélagslegu úrræði og þjónustu sem þarf til að ná þeim gæðum og framboði sem nauðsynlegt er til að veita viðunandi geðþjónustu fyrir alvarlega geðsjúka
Hvað er Cambervell assessment of needs?
Mælitæki fyrir þarfir fullorðinna geðsjúkra einstaklinga
- mælir þjónustuþarfir og hvernig þær eru uppfylltar á 22 sviðum