Dagaðgerðasjúklingar + socrative spurningar Flashcards
Hver er skilgreiningin á Dagaðgerðasjúklingi?
Sjúklingur sem kemur í aðgerð og útskrifast heim samdægurs (innan 24 klst frá aðgerð)
Afhverju að hafa dagaðgerðasjúklinga?
- Svar við kröfu um meiri hraða, hagkvæmni, framleiðni og skilvirkni í heilbrigðisþjónustu
- Vestrænar áherslu í heilbrigðiskerfinu og að hættulegt sé að liggja á sjúkrahúsi, ‘‘normið’’ núna
- Mögulegt vegna minna umfangs aðgerða, betri og breyttrar tækni við skurðaðgerðir, svæfingu og deyfingar, betri verkjalyfja og ógleðiforvarna
Hver er ávinningur dagskurðaðgerða umfram innlagnir?
- Betra flæði sjúklinga, betri nýting á skurðstofum, færra starfsfólk og minni kostnaður (um 25-68% lægri kostnaður við aðgerð á dagdeild)
- Styttri legutími og færri á biðlistum
- Meira pláss á legudeildum fyrir veikari sjúklinga
- Dagdeildir ættu bara að sinna dagsjúklingum (dagaðgerðasjúkl fá meiri athygli ef eru ekki með öðrum bráðveikum sjúkl á legudeildum)
Hver er ávinningur dagskurðaðgerða fyrir sjúklinga?
- Styttri legutími þýðir minni truflun á daglegri rútínu, færri dagar frá vinnu eða frá veikum ættingjum
- Færri spítalasýkingar
Hverjir eru fylgikvillar dagskurðaðgerða?
Yfirleitt minniháttar og mjög lág dánartíðni <1%
- Algengast: verkir, ógleði og uppköst, sljóleiki, þreyta, höfuðverkur og hæsi
- Önnur einkenni: þorsti, munnþurrkur og syfja
Fylgikvillar geta haft áhrif á legutíma og útskrift og áhrif á getu til að ná fyrri virkni eftir útskrift. Yfirleitt ekki lífshættulegt en vanlíðan og kvíði getur fylgt sem veldur því að sjúkl er lengur að jafna sig, einkum ef veit ekki við hverju má búast. Sjúkl þarf að vita hað er eðlilegt bataferli og hvaða einkeni hann á að leita aðstoðar með
Hvaða spurningar eru lagðar fyrir sjúklinga sem koma í innköllunarviðtal?
- Er einhver sem getur skutlað þér heim?
- Nærðu að redda þér fari ? (provide your own transport)
- Hefuru aðgang að síma?
- Er einhver sem getur fylgst með þér 24/7 ?
Hver er ábyrgð aðstandenda ?
- Krafa um að þeir hafi skilning á meðferð og umönnun eftir aðgerð og vilji taka ábyrgð á eftirliti með sjúkl
- Sumstaðar krafa um að sjúkl sé ekki meira en klukkustundarfjarlægð frá sjúkrahúsi til að tryggja að þeir komist fljótt á bráðadeild og til að minnka óþægindi á heimleiðinni
Hvernig er fræðsla til sjúklings sem fer í dagskurðaðgerð?
Aukin ábyrgð sjúklings sjálfs á undirbúningi:
- Mikilvægt að fái nákvæmar upplýsingar um allt ferlið til að tryggja að árangur meðferðar og öryggi
- Vel upplýstur sjúklingur frestar eða afboðar síður aðgerð en það getur orðið að komu á BMT eða bráðaaðgerð
* sjúkl og aðstandendur viti á hverju þeir eiga von og geti gert viðeigandi ráðstafanir
* Kanna heilsu, aðstæður og námsgetu sjúkl
* undirbúa sálfræðilega og draga úr kvíða
- Skrifleg og munnleg fræðsla (myndræn), samræmi
- Vegna sljóleika / minnisleysis ætti sjúklingur sem fer í svæfingu / slævingu að fá sem minnstar nýjar upplýsingar eftir aðgerð
- Aðstandandi með í útskriftarviðtali
Hver eru útskriftarskilmerkin?
- Við útskrift eiga dagaðgerðarsjúklingar að hafa stöðug LM, viðunandi verkjastillingu og vera lausir við ógleði, uppköst og svima
- Verkir, ógleði og uppköst eru helsta ástæða þess að dagaðgerðasjúkl eru endurinnlagðir
Hvernig metum við ástand sjúklings fyrir útskrift af dagdeild?
- Fyllilega vakandi og áttaður á stað / stund
- LM eðlileg
- Verkjalaus eða því sem næst á PO verkjalyfjagjöf. Skorar < 3 stig á NRS
- Þolir að drekka og borða
- Lítil eða engin ógleði eða svimi
-Hefur haft þvaglát - Lítil sem engin blæðing í umbúðir eða í þvagi (eftir tegund op)
- Sjálfbjarga við klæðnað og snyrtingu
- Hefur samþykkt útskrift og lýst sig tilbúinn að fara heim í fylgd
- Að aðstandandi verði hjá honum yfir nótt
Sjúklingur þarf að hafa fengið:
- Skriflega og munnlega útskriftarfræðslu frá hjúkrunarfræðingi um eftirmeðferð, lyf, hreyfingu og sárameðhöndlun. Aðstandandi viðstaddur ef kostur er
- Endurkomutíma hjá lækni og lyfseðil fyrir viðeigandi lyfjum
- Leiðbeiningar frá aðgerðarlækni eða deildarlækni um framhaldsmeðferð eftir aðgerð
- Upplýsingar um símanr og viðbrögð ef eh kemur upp á
- Hjúkrunarfræðingur metur hvort þörf sé á símaeftirfylgd og þá bókað tíma í sögu
Hvað má ekki gera eftir aðgerð?
- Keyra bifreið í 24 klst
- VInna með vélar eða heimilistæki í 24klst
- Drekka alkóhól í 24 klst
- Taka mikilvægar ákvarðanir í 24klst
- Vera skilinn eftir einn í 24klst
Hver er reynsla dagaðgerðasjúklinga?
Sjúklingar yfirleitt ánægðir en:
- Geta fundið fyrir einmannaleika og fundist þeir yfirgefnir meðan þeir bíða aðgerðar
- Skapsveiflur algengar á biðtíma. Von um bata vinnur á móti kvíða og ótta
- Geta verið óánægðir ef væntingar standast ekki um skjótan bata
Tíminn eftir heimkomu veiki hlekkurinn
- óvissa um hvað telst eðlilegt í bataferlinu og hvernig eigi að sinna sjálfsumönnun
Til að tryggja ánægju sjúkliga og gæði þjónustu við útskrift þá mælir IAAS með….?
- Góðri verkjameðferð; þeir séu lausir við ógleði og uppköst
- Að þeir hafi fengið góða fræðslu fyrir og eftir aðgerðina
- Að þeir fái ekki tilfinningu um að séu útskrifaðir of snemma
- Að hringt sé í þá daginn eftir til að fylgja þeim eftir
Kvíðinn frædni ykkar sem er 28 ára hefur verið boðaður til hálskirtlatöku á dagdeild.
Hann spyr ykkur hvort það sé ekki mjög hættulegt og hver sé dánartíðnin. Hverju svarið þið?
Fylgikvillar hjá dagskurðarsjúklingum eru yfirleitt minniháttar og dánartíðni er mjög lág, eða <1%
Frændinn vill þá vita hvaða fylgikvillar séu algengastir. Þið svarið því til að búast megi við minniháttar aukaverkunum en sú algengasta sé…. ?
Verkir, ógleði og uppköst, sljóleiki, þreyta, höfuðverkur og hæsi