Heiladingull Flashcards

1
Q

Við hormónarannsóknir þarf að huga að ýmsu, þar með talið sveiflum í þéttni ýmissa hormóna. Eftir hverju er þessi sveifla og hvað er hentugra að mæla frekar en hormónið sjálft?

A

Sveiflur í þéttni ýmissa hormóna eru/geta verið vegna:

  • Dagsrythma
  • Púlsatífrar framleiðslu
  • Mánaðarsveiflna

Það sem hentugra er þá að mæla er growth factorinn fyrir það hormón sem við viljum mæla.

Til dæmis varðandi vaxtarhormón, sem hefur sveiflukennda myndun, að þá notum við insulin like growth factor (IGF) er til þess að mæla fyrir því.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
2
Q

Fremri hluti heiladinguls (adenohypophysis) framleiðir þrjár grúppur af hormónum

A
  1. Corticotrophin-grúppa
  2. Glycoprotein-grúppa
  3. Somatotrophin-grúppa
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
3
Q

Corticotrophin-grúppa

A

Öll hormónin í þessum hópi eru peptíð sem eru án kolvetna og hafa frekar lítinn mólmassa.

a) Kortíkótrópín (ACTH)
b) Lípótrópín (precursor fyrir beta-endorfín)
c) Beta-endorfín og Met-enkefalín. (Ópióíð peptíð )
d) Melanócytstimulerandi hormón (MSH)

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
4
Q

Glycoprotein-grúppa

A

Hormón í þessum flokki eru byggð upp af alfa- og beta-keðjum. Alfa-keðjan er nánast alltaf eins hjá öllum hormónunum, en beta-keðjan er mismunandi.

a) Lútrópín (LH)
b) Follikúlótrópín (FSH): Myndast í gónadótróp frumum.
c) Thyrótrópín (TSH): Myndast í thyrótróp frumum.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
5
Q

Somatotrophin-grúppa

A

Hormón í þessum hópi eru byggð upp af peptíðkeðju með 2-3 dísúlfíðbryggjum.

a) Prólaktín: Myndast í laktótróp frumum.
b) Vaxtarhormón: Myndast í somatotroph frumum.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
6
Q

Þegar röskun er á þeim áhrifum sem hormón hafa að þá geta ástæður þess verið:

A
  • Ofstarfsemi eða vanstarfsemi innkirtils.
  • Truflun í starfsemi viðtaka hormónsins.
  • Primer eða secunder sjúkdómur.
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
7
Q

Heiladingull skiptist í framhluta og afturhluta. Hvað heita þeir, hvor þeirra er af taugauppruna og hvað stjórnar þeim?

A

Framhluti heiladinguls = Adenohyophysis. Hann er af ectodermal uppruna og er undir áhrifum örvandi og bælandi hormóna frá undirstúku (áhrifinum er miðlað um portal æðakerfið í heiladingli).

Afturhluti heiladinguls = Neurohypophysis. Er af taugavefsuppruna og fær boð sín frá taugaendum sem koma frá undirstúki.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
8
Q

Hvaða hormón eru mynduð í framhluta heiladinguls?

A

Það myndast 6 hormón í framhluta heiladinguls og eru það ACTH, FSH, LH og TSH, sem hafa áhrif á önnur endocrine líffæri, og síðan eru það vaxtarhormón (GH) og prólaktín, sem hafa áhrif beint á frumur ýmissa líffæra.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
9
Q

Hverjir eru stjórnunarþættir (frá undirstúku) hvers hormóns og hvaða líffæri hafa hormónin áhrif á?

A

TRH –>örvar–> TSH => Skjaldkirtill

CRH –>örvar–> ACTH => Nýrnahettubörkur

GnRH –>örvar–> LH og FSH => Kynkirtlar

GHRH –>örvar–> GH => Lifur og aðrir vefir

Dópamín –>minnkar–> Prólaktín => Brjóst og aðrir vefir

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
10
Q

Lýsið afturhluta heiladinguls og segið hvaða hormón hann framleiðir.

A

Afturhluti heiladinguls er hluti af miðtaugakerfinu og er hann byggður upp af taugafrumum.

Í afturhluta heiladinguls eru tvö hormón framleidd, sem fara beint úr taugaendum út í blóðrásina.

  • Arginin-Vasopressin (antidiuretic hormone = ADH = Ekki-pissa hormón)
  • Oxytocin

Hormónin eru bæði peptíð sem eru 9 amínósýrur að lengd og er aðeins munur á tveimur amínósýrum á milli þeirra.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
11
Q

Hvað örvar seytun arginin-vasopressins (ADH)?

A
  • Hækkað osmólalitet
  • Minnkað blóðrúmmál
  • Stress, ógleði
  • (Seytun í sjúkdómnum diabetes insipidus)
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
12
Q

Áhrif oxytocins

A

Oxytocin veldur:

  • Vöðvasamdrætti legs, t.d. við fæðingu
  • Örvar mjólkurtæmingu úr brjósti með því að hafa áhrif á vöðvafrumur brjóstaganga við brjóstagjöf.
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
13
Q

Próf Hvað veldur hyperprolactinemiu og hverjar eru afleiðingar hennar?

A

Orsakir hyperprolactinemiu geta verið stress (þ.m.t. blóðsýnataka), lyf (t.d. estrogen, fenóthíasín, metóklópramíd, alfa-metýldópa), primer hypothyroidismi (örvun frá TRH), heiladingulssjúkdómar, prolactinoma eða idiopatísk (skortur á dópamíni??).

Aleiðingar hyperprolactimeiu eru ófrjósemi og síðan eru blæðingartruflanir og galactorrhoea (mjólk lekur úr brjóstum) hjá konum, en hjá körlum eru einkenni oft staðbundin þrýstingseinkenni frá æxlinu, t.d. sjóntruflanir.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
14
Q

Próf Hverjar eru orsakir og afleiðingar æxlis í heiladingli?

A

Einkenni heiladingulsæxla eru staðbundin, t.d. höfuðverkur, papilluoedema og sjónsviðstruflanir.

Heiladingulsæxli valda ofstarfsemi ákveðinna kirtla og vanstarfsemi kynkirtla (panhypopituitarism).

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
15
Q

Hvaða hormón er algengast að heiladingulsæxli seyti?

A

Prólaktín er algengast, svo eru það non-functional æxli, síðan æxli sem seyta GH, ACTH, FSH/LH og sjaldgæfast eru þau sem seyta TSH.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
16
Q

Próf Hverjar eru orsakir og hver eru einkenni hypopituitarisma (= allur heiladingullinn sleginn út)?

A

Orsakir hypopituitarisma geta verið:

  • Æxli
  • Drep
  • Trauma
  • Meðfæddur galli
  • Sýking
  • Truflun í hypothalamus

Einkenni hypopituitarisma er mismunandi hjá börnum, konum, körlum og öldruðum.

  • Hjá börnum verður skertur vöxtur og þroski.
  • Hjá konum verður ófrjósemi og amenorrhoea.
  • Hjá körlum minnkað libido og secunder kyneinkenni.
  • Hjá öldruðum verður hypoglycemia og hypothermia.
17
Q

Vaxtarhormón

A

Hefur áhrif á (veldur) vöxt og þroska barna og unglinga.

Auk vaxtarhormóns þá hafa tyroxín, kortisól, kynhormón, insúlín og IGF áhrif á vöxt.

18
Q

Hvaða efni/þættir stjórna seytun vaxtarhormóns?

A

Svefn, amínósýrur, GHRH, æfing og álag valda aukinni seytun vaxtarhormóna.

Glúkósi og somatostatín valda hömlun á seytun vaxtarhormóna, sem og að vaxtarhormónin sjálf hafa neikvæða afturvirkni á undirstúku og IGF-1 (insulin-llike growth factor-1) frá lifur hefur neikvæða afturvirkni á undirstúku og framhluta heiladinguls.

19
Q

Hvaða orsakir geta verið fyrir of hægum vexti?

A
  • Foreldrar lágvaxnir
  • Erfðasjúkdómar
  • Vannæring
  • Systematískir sjúkdómar
  • Sálrænir þættir
  • Hormónatruflanir:
    • -> Skortur á vaxtarhormóni (sjaldgæft).
    • -> Vanstarfsemi skjaldkirtils
    • -> Cushing heilkenni.
20
Q

Hvaða orsakir geta verið fyrir ofvexti?

A
  • Gigantism (börn)
  • Acromegaly (fullorðnir)
  • Congenital adrenal hyperplasia (CAH) (oftast nýburar)
  • Hyperthyroidismi eða ofmeðhöndlun hypothyroidisma
  • Erfðasjúkdómar (Marfan heilkenni, Klinefelter heilkenni).
21
Q

Próf Acromegalia

A

Einkenni eru gróft andlit, þykknun á mjúkvefjum, grófar hendur, prognathism, aukin svitamyndun og skert sykurþol eða sykursýki.

Acromegalia er greind með mælingu á vaxtarhormóni við venjulegt sykurþolspróf. S-IGF-1 er þá hækkað.

22
Q

Hverjar eru orsakir polyuriu?

A
  • Sykursýki (diabetes mellitus)
  • Hypokalemia
  • Hyperkalsemia
  • Krónísk nýrnabilun
  • Diabetes insipidus
  • Sálræn polydipsia (óhófleg vatnsdrykkja vegna mikillar þorstatilfinningar)