Piaget og Vygotsky Flashcards
Hversu mörg orð kunna 6 ára börn?
8-14 þúsund
Á hvaða fjórum stigum er málþroski skoðaður?
Hljóðkerfisfræði, merkingarfræði, málfræði og málnotkun.
Hvað er hljóðkerfisfræði?
Að læra að greina tungumálið niður í orð og orðhluta.
Hvað er merkingarfræði?
Að læra merkingu orða og orðasambanda.
Hvað er merkingarvíkkun og merkingarþrenging?
Merkingarvíkkun: Eitt orð viðhaft um miklu víðara svið. Til dæmis að allir karlar eru afar. Merkingarþrenging er akkúrat öfugt, þar sem eitt orð er notað um mjög þröngt svið, t.d. að einungis Snati er hundur, ekki Lubbi.
Hvað er hraðgreining?
Aðferð þar sem börn mynda mjög hratt hugmynd um merkingu ákveðins orðs sem þau heyra í vel þekktum og skipulögðum félagslegum samskiptum.
Hvað er myndlíking?
Myndlíking er þegar börn nota orð yfir ákveðin hlut sem myndlíkingu fyrir annan, ótengdan hlut.
Hvað er málfræði?
Að læra reglur tiltekins tungumáls um uppröðun orða í setningu og skipulag orðhluta.
Hvað er málnotkun?
Að læra venjur um notkun tungumála í ákveðnum félagslegum aðstæðum.
Hvað er frásagnarhæfni?
Með auknum orðaforða, færni í málfræði og hugrænum þroska eykst hæfni barna til þess að segja frá. Frásagnir mjög stuttar, einfaldar og oft óskýrðar til að byrja. Fara svo smátt og smátt að fylgja grunnreglum um byggingu- taka aukið tillit til hlustandans, þ.e. saga staðsett í tíma og rúmi, megin persónur kynntar og einhver hápunktur í sögunni og einhverskonar endir. Börnin segja frá röð ákveðinna atburða. Það hvernig börn segja sögu getur verið mjög mismunandi eftir hefðum á mismunandi menningarsvæðum.
Hvað er morfem?
Minnsti hluti orða í tungumáli sem hafa enhverja meiningu (orðhlutar).
Grunnur tungumálsins
- Nýfædd börn taka málhljóð fram yfir önnur hljóð.
- Þau geta greint á milli hljóðunga allra tungumála heimsins.
- Aðeins fáum dögum eftir fæðingu taka þau hljóð móðurmálsins fram yfir hljóð annarra tungumála.
- 6 mánaða: Greina aðeins hljóðunga móðurmálsins.
- Ungabörn hjala, babbla og tala síðan eins konar hrognamál. Annars stigs gagnkvæmni skiptir miklu í málskilngi, en það gerir börnum og foreldrum kleift að tjá tilfinningar sínar um hluti og atburði.
Hvernig eru samskipti fyrir tungumál?
o Við fæðingu gretta börn sig og gráta.
o 2,5 mánaða brosa þau og babbla.
o 3 mánaða: bregðast við hegðun annarra (fyrsta stigs gagnkvæmni).
o 7 mánaða: bera kennsl á orð sem þau heyra oft.
o 9-12 mánaða: sameiginlegur skilningur (annars stigs gagnkvæmni).
Hvað er Broca-málstol?
Sjúklingar með Broca-málstol eiga annað hvort mjög erfitt með tal eða geta ekki talað. Þeir geta talað í stuttum setningum, án allra smáorða. Þeir sem læknast af sjúkdómnum segja að þau hafi vita hvað þau vildu segja en gátu það ekki. Sjúklingar skilja vel einstök orð en eiga erfiðara með að skilja flóknar setningar. Taugamyndir staðfesta not Broca svæðisins í flóknu talmáli.
Hvað er Wernicke-málstol?
Sjúklingar með Wernicke-málstol geta vel talað en það er lítið vit í því sem þau segja, vantar samhengi orðanna. Tala oft í löngum setningum með ónauðsynlegum og uppgerðum orðum.