Hjúkrun sjúklinga fyrir aðgerð Flashcards
Hvað þarf hjúkrunarfræðingur að hafa í huga þegar sjúklingar eru að fara í aðgerð?
Að þó að sjúklingur sé að fara í fyrirfram ákveðna hættulitla aðgerð þá er það kannski stærsti viðburðurinn í lífi þeirra. Passa að gera ekki lítið úr upplifun fólks.
Fræðsla fyrir aðgerð hefur margþætt áhrif, hvaða áhrif hefur hún?
- Aukin ánægja með meðferð
- Minni verkir
- Minni kvíði
- Færri fylgikvillar
- Aukin sjálfsbjargageta
- Aukin meðferðarheldni
Þarf einungis að fræða fólk um aðgerðina/lyf og fleira inná spítalanum?
Nei líka utan spítala eftir að heim er komið þar sem oft man fólk ekki eftir spítalalegunni vegna lyfja. Það er mjög mikilvægt að skipuleggja fræðslu og eftirfylgd sjúklinga sem vitað er að fyrir fram muni kannski vegna verr útaf ávinningur er aukin ánægja sjúklings og ódýrari heilbrigðisþjónusta vegna fækkunar einkenna,fylgikvilla og endurinnlagna.
Skiptir einhverju máli hvort sjúklingur fái einn fræðslu eða hvort fjölskyldumeðlimur sé með í fræðslunni?
Já rannsóknir hafa sýnt að ummönnunaraðilar/ættingjar sem eru viðstaddir í útskirftarfræðslu eru síður kvíðnir og eru ánægðari og sjúklingarnir fá færri heilsutengd vandamál eftir útskrift en ella.
Getum við treyst á það að það sé einhver annar búin að fræða sjúklinginn okkar og að við þurfum þess ekki?
Nei oft höldum við að sjúklingur sé að fá góða fræðslu frá öðrum en það er oftast ekki þannig. Getum ekki treyst á að sjúkraþjálfarinn fræði alla um hreyfingu eða að næringarfræðingurinn um næringu frekar að spyrjast um hvort hann hefur fengið fræðslu og ef ekki fræða hann.
Hvernig er undirbúningur fyrir aðgerð?
- Hérna er mikilvægt að nýta tímann vel fram að aðgerð og að sjúklingurinn sé í sínu besta formi þegar hann fer í aðgerð. Margt hægt að gera í biðtímanum til að byggja sig upp og flýta bataferlinu
- Hætta að reykja og drekka
- Stunda hreyfingu
- Borða hollt og næringarríkt fæði
Skiptir næring einhverju máli þegar kemur að aðgerðum?
Já mikilvægt að sjúklingur sé vel nærður fyrir aðgerð. Ekki áætla að stærri einstaklingur sé ekki vannærður. Vannæring hefur nefinlega áhrif á sárgróanda og seinkar bata.
Hvað getum við gert til þess að passa næringarástand fyrir skurðaðgerðir?
Gera mat á næringarástandi fyrir skurðaðgerð - gæta sérstaklega að öldruðum
Hvenær á að gera mat á næringarástandi?
Þetta er gert á innköllunarmiðstöð og ætti að gera reglulega meðan sjúkrahúsdvöl stendur.
Leiðrétta næringarskort til að líkaminn hafi nægar próteinbirgðir til að byggja upp vefi eftir aðgerð, varna sýkinum og öðrum fylgikvillum að gerða. Við innköllun eru sjúklingar hvattir til að borða næringarríkan mat meðan þeir bíða eftir aðgerð, sundum þarf innlögn til að næra um æð eða sondu
Hvað þarf að hafa í huga þegar spurt er um upplýsignar fyrir aðgerð?
- Vökvajafnvægin (er saga um hjartabilun/vökvasöfnun í lungum því það er líklegra til að valda meiri vandamálum eftir aðgerð
- Hægðatregða
- Þvagvandamál
- Tannstatus
- Notkun áfengis ( þetta getur valdið miklum aukaverkunum eftir aðgerð eins og óráði og þá er mikilvægt að spyrjast um magn til að fráhvarfsmeðferð sé árangursrík.
+ auk þess eru sjúklingar sem misnota áfengi líklegri til að vera vannærðir - öndunarvandamál
- sykursýki (seinkaður gróandi)
- ónæmisbæling (seinkuð merki um sýkingu)
- ofnæmi og lyf
- andleg líðan og trúarlegir þættir
Afhverju er mikilvægt að kenna sjúklingi öndunar og fótaæfingar fyrir aðgerð?
Til að minnka líkur á lungabólgu og blóðtöppum eftir aðgerð. Best að kenna fyrir þannig að sjúklingur getur gert æfingarnar um leið og hann vaknar
Hvernig er þindaröndun?
- Sitja með góðan stuðning við bakið
- Leggja aðra höndina á kviðinn og hina á bringuna
- Anda frá sé og út um munnin
- Anda rólega inn um nefið og finna kviðinn lyftast, bringan á að vera kyrr
- Anda rólega frá þér og finna hvernig kviðurinn sígur til baka
DVT - deep vein thrombosis eða blóðtappi áhættuþættir
- Skurðaðgerð (aðal áhættuþáttur)
- aldur (eldri en 40)
- offita
- þurrkur
- konur > karlar
- Hjartasjúkdómar
- Skemmandi æðaveggir
- Hreyfingarleysi (rúmlega lengur en 72 klst)
- Hormónainntaka
- Meðganga
- Langar flugferðir
- Fjölskyldusaga
- arfgeng blóðsegatilhneigind
Blóðtappi fyrirbygging
- Greina áhættuþætti
- Hreyfa sig og gera fótaæfingar
- Anti - emboliu sokkar (sjúkrasokkar)
- Næginleg vökvagjöf Blóðþynningarlyf- fragmin/klexan gefið fyrir aðgerð og oft í nokkra post op.
- Fylgjast með sjúklingi m.t.t verkja, þrota, bjúg, hita í útlimum
Afhverju er gerð húðhreinsun fyrir aðgerð?
- tIl að fækka örverum á húð og minnka þannig líkur á skurðsárasýkingum
- Sótthreinsandi sturtur eða venjuleg fer eftir hvort aðgerð sé hrein eða ekki en aðal málið er að nota sápu.