Taugasjúkdómar barna Flashcards
Höfuðverkur er hann algengur meðal barna?
Já, algengi höfuðverkja er mikið, hann getur verið frumkominn (primary) eða afleiddur (secondary)
Hér skiptir félagssaga mjög mikli máli þar sem það kemur oft einelti upp eða eitthvað þannig. Þurfum að spyrja beinna spurninga þar sem börn svara ekki eins og fullorðnir, þurfum að spyrja bara hreint út sagt. Foreldrar eru einnig mjög hræddir við krabbamein, að barnið þeirra sé með krabbamein í hausnum og þess vegna sé það með hausverk.
Hversu mörg % barna ca er með mígrenisgreiningu og hversu mörg % barna eru með verulegt vandamál vegna hausverkja
10% með mígrenisgreiningu
2% eru með alvarleg vandamál
Rauð flögg – hvenær að maður á að skoða meira þegar barn er með hausverki (8 rauð flögg)
- Barn yngra en 7 ára
- Merki um aukinn innankúpuþrýsting (höfuðverkur mest á morgnana, vaknar af höfuðverk, ógleði/uppköst, versnar við hósta eða að halla sér fram)
- Staðbundin taugaeinkenni við skoðun
- Skyndilega mikill höfuðverkur
- Höfuðverkur með flogi
- Vaxandi tíðni og alvarleiki
- Rugl/Skert meðvitund
- Aukið höfuðummál í barni yngra en 1 árs
Hver er birtingarmynd mígrenis hjá börnum?
Mígreni er ein af algengustu ástæðum fyrir höfuðverkjum hja börnum, köstin eru slæm. Þetta er barn sem forðast áreiti, kastar upp, er með svima, verki í auga, á erfitt með lykt og er með breytingar á sjón. Einkenni barna eru samt oft styttri en hjá fullorðnum og meiri einkenni frá kvið.
Er mígreni erfðasjúkdómur.
Já að vissu leiti
Þau börn sem eru með mígreni, 80% þeirra eiga foreldra sem er með mígreni
10% unglinga er síðan með mígreni
Meðferð mígrenis hjá börnum
- Þekking
- Væntingar
- Viðbrögð við kasti
- Meðferð í kasti
- Fyrirbyggjandi meðferð
- Að miklu leyti um fræðslu og væntingarstjónrun. Passa að kenna fólki ekki um. Leyfa barninu að komast í ró og næði og leggja sig í myrkrinu og sofna því það er besta lækningin.
Krampar (kippir og köst) hvað er algengast hjá yngri börnum og hvað er algengast hjá eldri börnum?
Hjá yngri eru margvíslegir eðlilegir kippir
hjá eldri börnum eru algeng starfrænir kippir og kækir
Hverjir fá hitakrampa?
3 mánaða - 6 ára
5% barna, meira í sumum fjölskyldu
Þriðja hvert barn sem hefur fengið hitakrampa fær aftur hitakrampa seinna
Hvða þarf að gera þegar einstaklingur fær hitakrampa?
- Þarf skoðun hjá lækni í fyrsta skiptið
- Hugsanlega þarf að meðhöndla eða greina ástæðu hitans
- Kemur oft þegar hitinn er að hækka
Þegar maður fær hitakrampa er lítil áhætta að þróa með sé flogaviki?
Já, Lítil aukning í áhættu á að þróa með sér flogaveiki
Hvað er flogaveiki?
Sjúkdómur í miðtaugakerfi, skyndileg, skamvinn truflun á virkni heilans vegna breytinga á flæði rafmagns um heilann
Flogaveiki er samkvæmt skilgreiningu þegar…
Flogaveiki er samkvæmt skilgreiningu þegar það eru meira en 60 % líkur á öðru flogi innan 10 ára.
Er það rétt að innan flogaveikinnar falla einnig þær afleiðingar sem einstaklingur hefur hlotið af því að fá endurtekin flog?
Já
Hvað er mikilvægt verkferli í greiningu á flogaveiki?
Saga mikilvægt verkferi í greiningu en skoðun skiptir líka máli og stundum myndgreining og heilarit.
Hvað er svona clinical definition af flogaveiki?
- Að minnsta kosti tvö óundirbúin/allt í einu flog með meira en 24 klst millibili
- one unprovoked seizure and a probability of further seizures similar to the general recurrance risk after two unprovoked seizures occuring over the next 10 years
- Greining á flogaveiki
Hvernær telst einstaklingur ekki lengur með flogaveiki?
Flogaveiki er talið vera farin hjá einstaklingum sem voru með aldursháð flogaveikiheilkenni en eru nú komnir yfir viðeigandi aldur eða þá sem hafa ekki fengið flog síðustu 10 ár og verið án flogalyfja síðustu 5 árin
Meðal algengustu flogaheilkenna barna er infantil spasm, hvað er það?
Þetta er algegnast hjá börnum 4-8 mánaða sem að byrja þannig að barnið setur höfuðið niður og hendurnar upp. Því lengur sem þetta gengur því verri líkur eru á góðum þroska, fólk tekur oft ekki eftir þessu þannig mikilvægt að grípa inn í þar sem það er til góð meðferð
þetta varir oftast í aðeins 1-2s en kemur oft á dag alveg 20-30x
Meðal algengustu flogaheilkenna barna er Lenox Gastraut, hvað er það?
Þetta eru nokkrar tegundir (held ég) og er svona fjarvera og oft í svefni. Getur komið fram tauga og hegðunarbreytingar
Meðal algengustu flogaheilkenna barna er störuflogaveiki, hvað er það?
Barnið dettur í störu, man ekki eftir því síðan en veit að eitthvað gerðist. Endist stutt oftast undir 30 sek.
2% barna með þettta
Meðal algengustu flogaheilkenna barna er panyatopolous hvað er það?
Uppköst og stara í svefni.
Meðal algengustu flogaheilkenna barna er góðkynja barnaflogaveiki hvað er það?
Þetta er oftast á morgnanna eða í svefni, kannski 8 flog hámark yfir ævina, hættir hjá flestum
Meðal algengustu flogaheilkenna barna er Juvenile myoclon epilepsy, hvað er það?
Þetta er oftast á unglingsaldi og einstaklingur þarf líklega flogalyf alla ævi ef það eru breytingar á riti
Hvernig er meðferð flogveiki hjá börnum?
- Heildræn nálgun
- Ekki öll börn með flogaveiki þurfa lyf en stundum þarf lyf sem stöðvar flog og lyfin hafa aukavekanir
- Mikilvægt að velja lyf út frá gerð flogs, flogaheilkennis, aldurs og aukaverkunum
- Fræða skóla og vini og aðstandendur
- Ræða bílpróf, þungun, áfengi, sund, klifur, hjálmanotkun og starfsval
- Gjarnan hætt á meðferð ef bara eitt flog eftir 6 mán eða eftir 2 ár eftir greiningu flogaveiki en stundum ákveðið frá byrjun að það verði aldrei hætt
- Ketogen diet, vagus nerv stimulator, skurðaðgerðir vegna flogaveiki
- Leggjum ekki áherslu á SUDEP þó það sé til
Hvað er Cerebral palsy (heilalömun, CP)
Cerebral palsy (heilalömun) er hópur sjúkdóma sem hafa áhrif á hreyfingu og samhæfingu hreyfinga.
Þetta hefur áhrif á mismunandi staði í líkamanum.