Vikupróf 2 Flashcards
Ein eftirfarandi fullyrðinga er rétt. Merkið við rétta fullyrðingu.
- Í heiðhvolfinu veldur kólnun með hæð því að það hlýnar þegar CO2 breytist í ósón
- Ekki er vitað hvað veldur hlýnun heiðhvolfsins
- Aukin styrkur ósóns veldur kólnun í heiðhvolfinu
- Aukin styrkur CO2 veldur kólnun í heiðhvolfinu
Aukin styrkur CO2 veldur kólnun í heiðhvolfinu
Ein eftirfarandi fullyrðinga er röng. Merkið við ranga fullyrðingu
- Arrhenius reiknaði út áhrif þess að tvöfalda styrk CO2 í lofthjúpnum.
- Eunice Foot benti á að ef CO2 styrkur hefði verið meiri á einhverjum tímabilum jarðsögunnar þá hlyti þá að hafa verið hlýrra.
- Fourier skýrði hversvegna tilvist lofthjúpsins leiðir til hlýnunar
- Lofthjúpurinn er mettaður af CO2 svo þó magn hans aukist getur ekki hlýnað
Lofthjúpurinn er mettaður af CO2 svo þó magn hans aukist getur ekki hlýnað
Hvaða fullyrðing um losun á hnattræna vísu er rétt?
Merkið við rétta fullyrðingu
- Losun vegna samgangna er ráðandi þáttur í losun gróðurhúsalofttegunda frá einstökum geirum
- Losun vegna iðnaðarferla er ráðandi þáttur í losun gróðurhúsalofttegunda frá einstökum geirum
- Losun vegna landbúnaðar, skógræktar og annarrar landnotkunar (AFOLU) er langstærsti þátturinn þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda frá einstökum geirum
- Orkuframleiðsla losar meira af gróðurhúsalofttegundum en aðrir efnahagsgeirar
Orkuframleiðsla losar meira af gróðurhúsalofttegundum en aðrir efnahagsgeirar
Ein af eftirfarandi fullyrðingum tengd orkunotkun, kolefnislosun og/eða kolefniskvóta er röng.
Merkið við ranga fullyrðingu
- Notkun á jarðgasi hefur dregist saman á undanförnum áratugum
- Gróft séð er línulegt samband milli uppsafnaðrar losunar vegna bruna jarðefnaeldsneytis og hlýnunar
- Hlufallslega jókst orkunotkun frá endurnýjanlegum orkugjöfum mun meira á síðustu áratugum en orkunotun frá bruna jarðefnaeldsneytis
- Ef losun vegna bruna jarðefnaeldsneytis veður áfram yfir 35GtCO2 þá eru ekki þrír áratugir þangað til að hlýnun yfir 1.5 gráður verður óumflýjanleg (hafi hún ekki þegar gerst)
Notkun á jarðgasi hefur dregist saman á undanförnum áratugum
Ein fullyrðing um sjávarstöðubreytingar er rétt. Merkið við rétta fullyrðingu.
- Suðurskautslandið er svo langt í burtu að massatap þar hefur engin áhrif á sjávarstöðu á Íslandi
- Sjávarstöðhækkun á Íslandi verður líklega minni en hnattræn sjávarstöðuhækkun
- Þegar Grænlansjökull tapar massa veldur það mikilli sjávarstöðuhækkun á Íslandi
- Þegar Grænlandsjökull tapar massa lækkar sjávarstaða hnattrænt
Sjávarstöðhækkun á Íslandi verður líklega minni en hnattræn sjávarstöðuhækkun