Vikupróf 1 (Maggi) Flashcards
Merkið við rétt svar
- Það er mest varmaorka í lofthjúpnum í hitahvolfinu
- Hvað massa áhrærir eru 99.9% af lofthjúpnum í veðraholfinu og heiðhvolfinu
- Áætlunarflugvélar fljúga aðallega í fareindahvolfinu
- Loftþrýstingur fellur í veðrahvolfi, eykst í heiðhvolfi og fellur aftur í miðhvolfi
Hvað massa áhrærir eru 99.9% af lofthjúpnum í veðraholfinu og heiðhvolfinu
Þið sjáið Friðarsúluna á fallegu kvöldi í desember. Neðst er hún blá, svo kemur innskotslag þar sem hvítleitt ljós dreifist í allar áttir. Fyrir ofan heldur svo bláleit súlan áfram eins langt og þið sjáið.
Merkið við ranga fullyrðingu
- Hvíta lagið er vegna tvístrunar frá ögnum sem eru álíka stórar eða stærri en bylgjulengd ljóssins. Hugsanlega ský eða Mie tvístrun frá ögnum
- Blái liturinn er vegna Rayleigh tvístrunar
- Blái liturinn stafar af því að sameindir í loftinu tvístra bláu ljósi í átt til þín
- Súlan er sýnist blá af því að öllu nema bláa litnum hefur verið tvístrað úr ljósgeislanum
Súlan er sýnist blá af því að öllu nema bláa litnum hefur verið tvístrað úr ljósgeislanum
Byggður er 50 m hár turn á Mýrunum, vestan við Hvanneyri.
Byggingarstaðurinn er á sömu breiddargráðu og Hvanneyri, en með útsýni til suðurs.
Merkið við ranga fullyrðingu
- Skugginn frá turninum er lengri skömmu fyrir sólsetur en á hádegi
- Skugginn frá turninum sem fellur til suðurs er lengstur á vetrarsólstöðum.
- Mesti skuggi sem turninn varpar á hádegi er um 1250m á vetrarsólstöðum
- Á hádegi á sumarsólstöðum er skugginn frá turninum styttri en 50 m
Skugginn frá turninum sem fellur til suðurs er lengstur á vetrarsólstöðum.
Jörðin fer mjög nærri því að vera í orkujafnvægi. Það þýðir að
- Efst í lofthjúpnum er jafnmikil inngeislun sólar og útgeislun jarðar
- Sólin skín ekki á nóttunni
- Yfirborð jarðar geislar frá sér jafnmikilli orku og það fær frá sólinni
- Á sérhverri breiddargráðu er jafnmikil inngeislun sólar og útgeislun jarðar
Efst í lofthjúpnum er jafnmikil inngeislun sólar og útgeislun jarðar
Skoðum tvær fullyrðingar
- Ósón lagið er í um 15 - 35 km hæð (fer eftir svæði og árstíma) og þar er styrkur ósóns um 30 falt meiri en að meðaltali í lofthjúpnum.
2, Lofthjúpurinn er vel blandaður (langlífum gastegundum er jafndreift) í neðstu 100 km.
Ef báðar fullyrðingar eru réttar þá má draga af þeim báðum eftirfarandi ályktun:
- Ósón blandast ekki vel við aðrar lofttegundir, ólíkt t.d. Nitur Oxíði
- Ósón er langlíf lofttegund sem lekur hægt niður að yfirborði
- Ósón er ekki langlíf lofttegund
- Ósón eyðir útfjólubláu ljósi
Ósón er ekki langlíf lofttegund