Krossar Flashcards
Samkvæmt Leamon o.fl. Hafa að minnsta kosti _____ prósent jarðarbúa notað að minnsta kosti eitt hugbreytandi efni (vímugjafa) á einhverjum tímapunkti í lífi þeirra
50%
Hver af eftirfarandi fullyrðingum er rétt samkvæmt sjúkdómskenningu E. M. Jellinek?
Hann hélt því fram að áfengissýki væri sjúkdómur á svipaðan hátt og krabbamein eða lungnabólga
Hornsteinn í líkani Jellinek um áfengissýki er að einstaklingurinn…
Er með líkamlegan sjúkdóm frekar en siðferðisbrest
Dr. Benjamin Rush (1812) skilgreindi áfengissýki sem “sjúkdóm” sem væri
Allt sem gæti valdið ójafnvægi í taugakerfinu
Ef móðir neytir áfengis með barn á brjósti þá berst áfengið ekki í móðurmjólkina. Rétt eða rangt?
Rangt
Snemma á meðgöngu hefur verið sýnt fram á að nikótín, áfengi, marijúana, ópíöt, kókaín og metamfetamín geta haft fósturskemmandi áhrif. Satt/Ósatt?
Satt
Allir einstaklingar sem hafa drukkið áfengi til lengri tíma þurfa að halda áfram að auka það áfengismagn sem þeir neyta til þess að ná tilteknu stigi ölvunar alla ævi.
Rangt
Wernicke-Korsakoff sjúkdómur (Wernicke-Korsakoff heilkenni) getur verið banvænn
a. taugasjúkdómur.
b. hjarta- og æðasjúkdómur.
c. aukaverkun vegna skorpulifur.
d. meltingarfærasjúkdómur.
e. Húðsjúkdómur.
Taugasjúkdómur
Talið er að _________ sé árangursríkasta meðferðin fyrir sjúklinga sem meðhöndla þarf vegna fráhvarfa af áfengisneyslu.
Benzodiusarlyf
Að neyta kókaíns með ________ eykur líkur á hjartastoppi hjá einstaklingum en ef þeir eru að nota kókaín eitt sér.
a. Amfetamín
b. heróín
c. Morfín
d. Áfengi
e. marijúana/kannabis
Áfengi
Einstaklingar sem hafa lengi reykt marijúana/kannabis geta þróað með sér
a. stærri svæði við hippocampus (dreki) og amygdala (mandla) í heila.
b. minni virkni ónæmiskerfisins.
c. betri REM svefn.
d. meiri áhættu á að fá ákveðin krabbamein.
e. betri virkni meltingarfæra
Meiri áhættu á að fá krabbamein
Hver af eftirfarandi fullyrðingum um marijúana/kannabis er rétt?
a. Marijúana/kannabis uppfyllir skilyrði fyrir því að vera ávanabindandi vímuefni.
b. Þol fyrir marijúana/kannabis (THC) þróast ekki hjá þeim sem neyta efnisins.
c. Marijúana/kannabis misnotkun útleysir ofbeldisfulla hegðun hjá einstaklingum.
d.Marijúana/kannabis eykur styrk samdráttar í hjartavöðva.
e.Ekkert af ofartöldu er rétt.
Marijúana/kannabis uppfyllir skilyrði fyrir því að vera ávanabindandi vímuefni.
Langvinn misnotkun á ópíóíðum getur oft leitt til __________ fyrir notandann.
a. aukinna verkja
b. aukningu á endurliti (e. Flashes)
c. aukinnar hægðatregðu
d. aukningu á svefnleysi
e. Ekkert að ofantöldu er rétt.
Aukinnar hægðatregðu
Marijúana/kannabis neysla hefur verið tengt við truflun á kyngetu hjá körlum. Satt/ósatt?
Satt
Ferlið við bata við vímuefnaröskun (SUD) er hægt að lýsa sem ferli með
a. því að fjarlægja æxli með skurðaðgerð.
b. því að það er stutt ferli og tekur fljótt af.
c. eins og að jafna sig eftir handleggsbrot.
d. sjúkdómsstjórnun við langvinnum sjúkdómum.
e. skaðaminnkun
Sjúkdómsstjórnun við langvinnum sjúkdómum
Um það bil 90% þeirra sem háðir eru morfínlyfjum (ópíóíðum) og ljúka aðeins afeitrun á sjúkrahúsi byrja aftur að misnota vímuefni á innan við sex mánuðum. SATT/ÓSATT
Satt
Þvagpróf sem eiga að greina eiturefni (lyf/vímuefni) í þvagi geta ekki greint mörg lyf sem eru misnotuð. SATT/ÓSATT
Satt
Hvert af eftirfarandi er EKKI ein af „reglunum“ sem almennt er framfylgt í fjölskyldum með vímuefnaröskun (SUD)?
a. Ekki rugga bátnum með hegðun eða tali.
b. Treystu engum.
c. Ekki skilgreina eigin hugsanir eða tilfinningar um vandamálið í fjölskyldunni sem skapast hefur vegna vímuefnaneyslu fjölskyldumeðlims.
d. Ekki tala um vandamálið.
e. Einstaklingnum finnst hann ekki bera ábyrgð á einstaklingnum með SUD og afleiðingum neyslunnar innan fjölskyldunnar.
Einstaklingnum finnst hann ekki bera ábyrgð á einstaklingnum með SUD og afleiðingum neyslunnar innan fjölskyldunnar
Samkvæmt kennslubókinni Doweiko (2018) er sagt að minnsta tilfinningalega nándin í parasambandi er þegar
a. það eru börn yngri en 5 ára á heimilinu.
b. aðeins annar aðilinn er í virkri áfengisneyslu.
c. einstaklingarnir í parasambandinu starfa á mismunandi tímum utan heimilis.
d. báðir aðilar eru í svipaðri áfengisneyslu.
e. það eru unglinar á heimilinu og aðeins annar aðilinn er í launaðri vinnu.
Báðir aðilar eru í svipaðri áfengisneyslu
Talið er að lyfið Buprenorphine sé allt að 200 sinnum sterkara en morfín. SATT/ÓSATT
Ósatt
Börn sem eiga____ við foreldra sína eru ekki líkleg til að byrja að nota vímuefni
Sterk tengsl
Um það bil 50–80% þeirra unglinga sem greinast með hegðunarröskun munu þróa með sér vímuefnaröskun einhvern tíma á lífsleiðinni. RANGT/RÉTT
Rétt
Sýnt hefur verið fram á að um það bil 20% eldra fólks taka inn ávanabindandi lyf sem þau hafa ekki fengið ávísað/uppáskrifað af læknum. RANGT/RÉTT
Rétt
Hættuleg notkun áfengis fyrir aldraða er skilgreind sem fleiri en ___ drykkir í einni lotu.
a. tveir
b. fjórir
c. þrír
e. fimm
f. Sjö
Þrír
Hvað af eftirtöldu er EKKI eitt af afleiðingum sem getur komið fram hjá börnum eftir fæðingu vegna amfetamínneyslu móður á meðgöngu?
a) Auknar líkur á athyglisbrest og ofvirkni
b) Frávik í andliti
c) Lægri fæðingarþyngd
d) Meðfæddar heilaskemmdir
e) Hærri tilfinningaleg viðbrögð á 3 og 5 ára aldri
ss börn geta fæðst með skarð í vör óháð því að móðir hafi neytt vímuefna á meðan þungun. Skoða „federal alcohol syndrome“. Áfengisheilkennin
Frávik í andliti
Konur með áfengisröskun (AUD) eru sjöfalt líklegri til að þjást af __________ en karlar með AUD
Þunglyndi
Börn sem alast upp hjá foreldrum með vímuefnaröskun eru líklegri til að alast upp við vanrækslu og/eða vera beitt ofbeldi en börn sem alast ekki upp við vímuefnaneyslu foreldra. Satt/ósatt?
Satt
Hvert af eftirtöldu ætti að vera á lista yfir óbeinan kostnað varðandi átak gegn vímuefnaneyslu?
a) kostnaður við fangelsun þeirra sem dæmdir eru fyrir fíkniefnabrot
b) veita fjölskyldum þeirra sem dæmdir eru fyrir fíkniefnabrot viðeigandi aðstoð hjá fagaðila
c) kostnaður við forvarnir og meðferð
d) kostnaður við heilbrigðisþjónustu vegna hliðarsjúkdóma fyrir einstaklinga með vímuefnaröskun
e)allt ofantalið er rétt
Allt ofantalið rétt
Konur eru ólíklegri til að þróa með sér áfengisröskun en karlar. Satt/Ósatt?
Satt
Hvað af eftirfarandi fullyrðingum er rétt?
a) Það er samband á milli vímuefnaneyslu móður, þunglyndis og sjálfsvígstilrauna eftir fæðingu
b) Fæstar konur á barneignaraldri með vímuefnaröskun fá viðeigandi meðferð
c) Rannsóknir hafa sýnt fram á að ef móðir neytir vímuefna á meðgöngu getur það ýtt undir aðlögun og samskiptahæfni barna
d) Fóstur/börn sem verða fyrir áhrifum vímuefna í móðurkviði vegna vímuefnanotkunar móður eru ekki í meiri hættu á að verða fyrir þroskaskerðingu en börn mæðra sem ekki hafa notað vímuefni á meðgöngu
e) Vísindamönnum hefur tekist að greina skýrt tiltekið hegðunarmynstur hjá börnum sem fædd eru af mæðrum sem misnota vímuefni
Það er samband á milli vímuefnaneyslu móður, þunglyndis og sjálfsvígstilrauna eftir fæðingu
Bensódíazepín lyf geta truflað
a. kynferðislega virkni.
b. svefn.
c. minni.
d. andlega líðan.
e. Allt ofan talið er rétt.
Allt ofantalið er rétt