Gæðaskjal covid-19 Flashcards

1
Q

Hver er tilgangur með gæðaskjali covid 19?

A
  • Að lýsa stuðningi við fjölskyldur á meðan heimsóknarbann er í gildi á landsspítalanum
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
2
Q

Hvert er markmið gæðaskjals covid19?

A
  • Að veita faglega og góða fjölskylduhjúkrun, þrátt fyrir að aðstandendur geti ekki verið á staðnum.
  • Að veita upplýsingar um sjúkdómsástand, meðferð og framvindu.
  • Að sýna aðstandendum tilfinningalegan stuðning og meta líðan þeirra.
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
3
Q

Er mikilvægt að stuðla að því að aðstandendur geti átt myndsamtal við ástvini sína og heilbrigðisstarfsfólk?

A

Já.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
4
Q

Hvað geta myndsímtöl við heilbrigðisstarfsfólk gert fyrir fólk?

A

Myndsamtöl við heilbrigðisstarfsfólk geta aukið á traust, stuðlað að betra meðferðarsambandi og meðferðaheldni.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
5
Q

Er nauðsynlegt að heilbrigðisstarfsmaður eigi samskipti við aðstandendur þó svo að sjúklingur sé í miklu sambandi við þau sjálfur?

A


- Nauðsynlegt er að heilbrigðisstarfsmaður eigi samskipti við aðstandendur þó svo að sjúklingur sé sjálfur í miklu sambandi við þá.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
6
Q

Hvenær eru samskipti við aðstandendur sérstaklega mikilvæg?

A

Samskipti við aðstandendur eru sérstaklega mikilvæg við eftirfarandi aðstæður:
- Þegar sjúklingur kemur á deild.
- Þegar fræðsla er veitt.
- Við stofugang.
- Þegar sjúklingur fær upplýsingar um sjúkdómsgreiningu.
- Við nýjar fréttir.
- Við útskriftarviðtal.
- Við dánarbeð og andlát

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
7
Q

Hvernig virkar það með upplýsingar um nánustu aðstandendur og upplýsingagjöf

A
  • Sjúklingur skilgreinir sjálfur hver er hans nánasti aðstandandi, við hvern starfsmenn hafa samband og hvaða upplýsingar viðkomandi má fá.
  • Þurfum að uppfæra list nánasta aðstandenda þegar sjúklingur leggst inn, vera meðvituð um að fletta þessu upp til að vera að veita ekki einhverjum upplýsingar sem að má ekki fá þær.
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
8
Q

Dæmi um hjálplegar setningar í samtali við sjúkling varðandi aðstandendur?

A
  • Ég myndi vilja heyra í einhverjum af þínum nánustu, hvern ætti ég að hringja í og hvaða upplýsingar má ég veita?
  • Má ég segja honum/henni það sem ég var að segja þér/kom fram á stofugangi?
  • Hvern eigum við að hafa sem tengilið fjölskyldunnar varðandi upplýsingar um veikindi þín og hvernig gengur?
  • Hver heldur þú að eigi erfiðast í þessum aðstæðum?
  • Er einhver af þínum aðstandendum sem þú hefur áhyggjur af?
  • Má ég skrá í sjúkraskrána þína að við hringjum daglega í hann/hana eða viltu að við spyrjum þig í hvert skipti?
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
9
Q

HVaða leiðir er til að hafa rafræn samskipti?

A

A) Símtal
B) Myndsamtal
C) Ljósmynd eða myndband:
- Í samráði við sjúkling er hægt er að taka mynd eða myndband af viðkomandi á hans síma og með hans samþykki af nærumhverfi hans/hennar og senda til aðstandenda eða af framförum hjá viðkomandi t.d. fyrsta göngutúr eftir stóra aðgerð, fyrstu máltíðina eftir að kemur úr öndunarvél.
- Einnig má hvetja aðstandendur til að senda sjúklingum “talað” bréf, kveðju í upptöku, spjall eins og þau myndu gera ef þau sætu við rúmstokkinn, eða lesa úr uppáhalds bók eða ljóðum sem sjúklingurinn þekkir og þykir vænt um - slíkt mætti gera fyrir sjúklinga sem eru jafnt vakandi og svæfðir.
- Tækjabúnaður er ýmist sími eða spjaldtölva í eigu sjúklings (óskað eftir því að heiman) eða spjaldtölva í eigu deildar.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
10
Q

Dæmi um hjálplegar setningar í samtali við aðstandenda:

A
  • Eftir stofuganginn í dag var ákveðið að….
  • Er eitthvað sem þú ert að velta fyrir þér?
  • Það er ekkert nýtt að frétta af X í dag, en mér þykir mikilvægt að hitta ættingja svo mig langar að heyra í þér. Hvernig hefur þú það?
  • Nú er ég að sinna X í fyrsta skipti í dag en hann/hún búinn að vera hér í 3 daga, þar sem ég veit ekki nákvæmlega hvað upplýsingar þú hefur fengið langar mig að fara yfir það helsta sem er í gangi.
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
11
Q

Veittar eru eftirfarandi ráðleggingar til aðstandenda:

A
  • Mikilvægt er að sækja stuðning til nærumhverfis ef hægt er t.d. ættingja, vina, stuðningshópa, presta eða annað.
  • Halda venjubundinni rútínu eins og hægt er, t.d. sækja vinnu eða skóla eins og vanalega.
  • Taka “andlega pásu” frá COVID-19 fréttum.
  • Nota náttúruna, fara í göngutúra eða aðra útiveru eins og leyfilegt er.
  • Nýta sér netúrræði sem eru í boði, t.d. sjúkraþjálfun, jóga, hugleiðslu, sjálfstyrkingu og samhjálp.
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
12
Q

Í hverju felst stuðningur við aðstandendur

A
  • Það getur verið erfið upplifun fyrir aðstandendur að sjá sína nánustu á spítala, jafnvel mikið veika og tengd í ýmis lækningatæki.
  • Hægt er að bjóða aðstandanda að fá myndsamtal við hjúkrunarfræðing sem útskýrir meðferðina sem viðkomandi er að fá, sýnir tæki og búnað og útskýrir hvað þau gera, líkt og gert er undir venjulegum kringumstæðum.
    *- Meta þarf í hvert skipti hvort viðeigandi sé að hafa myndsamtal og hvort aðstandendur þurfi mögulega á stuðningi að halda á meðan á samtali stendur. Hægt er að:
    A) bjóða aðstandenda að hitta heilbrigðisstarfsmann á öðrum stað á Landspítala sem er þá til stuðnings við aðstandenda á meðan að á samtalinu stendur
    B) hafa samband við sálgæslu presta og djákna
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
13
Q

Úrræði ef starfmaður hefur áhyggjur af andlegri líðan aðstandenda

A

Aðstandenda er bent á viðeigandi úrræði eftir alvarleika vandans:
- Hjálparsíminn 1770
- Hafa samband við sína heilsugæslustöð og óska eftir stuðningi
- Bráðamóttaka geðsviðs virka daga kl. 12-19 og um helgar og á frídögum kl. 13-17 og bráðamóttaka í Fossvogi utan þess tíma.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly