Fæðing án framgangs -ÞSt 27.apríl Flashcards
Hvað þýðir dystocia?
= ekki fæðing/hríðir
Stocia = fæðing/hríðir. Dys = án/ekki
Í hvað tilfellum setur maður greininguna “misræmi fósturs og grindar” eða “Cephalopelvic disproportion (CPD) sem örsök teppts framgans í fæðingu?
Þetta er í rauninni útilokunargreining og stundum svolítil ruslakistugreining. Ekki hægt að nota þetta nema allt annað hafi verið eðlilegt.
Aldeilis ekki víst að þetta endurtaki sig þó svo hún verði með svipað stórt barn næst.
Hvað er svona slæmt við langdregna fæðingu?
Hverjar eru áhætturnar/afleiðingarnar?
=> Endar oft með inngripum
- Keisari
- Áhaldafæðing
- Misheppnuð áhaldafæðing og keisari
- Fósturstreita og áhættur af súrefnisskorti
- Blæðing eftir fæðingu (PPH)
- Aukin þörf á lyfjum (Synto, verkjalyf)
- Frekar þörf á deyfingu
- Sýking í og eftir fæðingu
- Kvíði móður og sálræn áhrif síðar (“slæm upplifun”)
HVenær byrjar maður að skrá ganginn inn á partogramið?
Þegar fæðingin er hafin, aktífur fasi, helst ekki fyrr.
Hentugt tæki til greiningar dystociu?
Reglustrikan með alert line og action line!
Ef útvíkkunin krossar niður fyrir alert line þá sperrum við eyrun en fylgjumst áfam með. En ef að hún fer enn neðar og niður fyrir action line => þá gerum við eitthvað í málinu.
Þetta byggist algjörlega á því að við setjum útvíkkunina ekki of snemma inn.
Eftir 6 cm í útvíkkun þá sættum við okkur ekki við neinn hægagang.
Hver eru P-in þrjú í fæðingu?
Power = kraftur sóttar Passage = konan og fæðingarvegurinn Passanger = barnið
Hafa 3 P-in alltaf í huga þegar metinn er gangur fæðingarinnar
Hvað getum við gert til að örva sótt?
Höfum bara ákveðna þætti til að örva ganginn => belgjarof og svo syntocin dreypi. Í þessari röð.
En cytotec, mætti notast viði það til að örva sótt?
Notum aldrei cytotect il að örva sótt, bara til að gangsetja.
Hvað ber að varast við belgjarof?
- Hætta á naflastrengsfalli ef kollurinn stendur hátt upp í kvið.
- Ef belgurinn liggur þétt upp við koll barnsins þá kroppum við bara aðeins í.
Hvernig metum við styrk hríðarinnar?
- (x)-xxx (ljósmæðurnar nota þetta. Eins til þriggja krossa hríð)
- Tocogram (Útslagið á tocogram hefur þó ekkert með styrk hríðarinnar að gera)
- Montevideo units (intrauterine styrkur x tíðni)
- Uterine acticity units
- Electrohysteromyogram – framtíðin?
=> Fyrst og fremst árangurinn, hversu effektív sóttin er.
Hvað er AFL og hvað segir það okkur
Amniotic fluid lactate. Laktat í legvatninu frá legvöðvanum. Nýjung að meta þreytu í legvöðvanum út frá legvatninu.
EF of hátt laktat í legvatninu, hvað segir það okkur?
T.d er ekki gott að örva leg með hátt laktat => verður vítahringur. Sleppum þá syntocininu og leyfum því að hvílast og þá fer þetta oft að ganga.
Kona í spontant sótt sem er langdregin, ákveðið hefur verið að gera belgjarof, sem reynist svo gera takmarkað. Hvað á að bíða lengi milli þess sem belgjarof er gert og þar til syntocin dreypi er sett upp?
Gefum þessu klukkutíma! Ef sóttin ekki orðin betri þá bætum við við syntocini.
Hvað fleira getur skipt máli upp á framgang fæðingarinnar?
Deyfing
Hreyfing og stellingar
Vökvun – næring
Uppörvun og vellíðan
Hverjar eru ábendingarnar fyrir notkun syntocinon?
Örvun hríða
Gangsetning (e. Belgjarof)
Postpartum blæðing (fyrirbyggjandi og meðferð)
Brjóstagjöf