2-5 fósturfræði Flashcards
Hversu lengi er eggið í egglosi móttækilegt fyrir frjóvgun?
U.þ.b. 24klst eftir að það losnar (eftir þann tíma er það orðið gamalt og deyr)
Hvenær er frjósamasti tíminn?
Degi fyrir > degi eftir egglos
Virkjun sáðfrumna
Til að geta frjóvgað eggið þarf sáðfruman að virkjast. Yfirborð sáðfrumunnar breytist í umhverfi legsins, sem gerir henni mögulegt að brjótast í gegnum egghýðið (Syndir þá líka hraðar)
Hvaða leið fer sáðfruman að kjarna eggfrumunnar?
Corona radiata > zona pellucida > plasma membrane of secondary oocyte > cytoplasm of secondary oocyte
Hvað virkjar sæðishjálminn?
yfirborðsviðtakarar í zona pellucida - egghýði virkja sæðishjálminn
Hvenær klárar eggfruman fyrri meiósu skiptinguna?
Ekki fyrr en við egglos og klárar þá ekki seinni meiósu skiptinguna nema það verði frjóvgun
Okfruman
Fyrsta alhæfa stofnfruman
Okfruman tekur að skipta sér (1. Vika fósturþroska)
Cleavage > fyrstu skiptingarnar gefa frá sér smærri frumur sem loða lítið saman (blastomeres). Svo þjappast frumurnar saman pg loða saman og mynda morulu
Hvernig verður morulan að kímblöðru? (1. Vika fósturþroska)
Í morulunni tekur að myndast holrými - kallast eftir það kímblaðra (blastocyst)
Hvað gerist í kímblöðruholi?
Fósturvísir byrjar að sérhæfast í innri og ytri frumumassa.
Innri frumumassi (embryoblast) gefur af sér
fóstrið
ytri frumumassi (trophoblast) myndar
æðabelginn og fylgjuna
Bólfesta (implantation - 1-2. Vika fósturþroska)
Það ferli þegar kímblaðran ræðst inn í legslímuna. Gerist yfirleitt efst í leginu. Binding við decidua (legslímhúð) svæðið sem fósturvísir tengir sig við
Decidua basalis
Liggur undir fósturvísinum, staðurinn þar sem fylgjan þroskast
Decidua capsularis
Liggur yfir fósturvísinum, verður æðabelgurinn
Ytri frumumassinn sérhæfist í 2 lög: (2. Vika fósturþroska)
Ytra samfrumuhýði (syncytiotrophoblast) og innra sérfrumuhýði (cytotrophoblast)
Hvað framleiðir ytri frumumassinn?
Human chorionic gonadothrophin (hCG) - hormón sem mælist á þungunarprófi
Hvað gerir samfrumuhýðið?
Veldur breytingum á legslímunni
Blóðlón myndast (2. Vika fósturþroska)
Blóð frá móður og næringarefni frá kirtlum í legveggnum streyma í lónin, útvega fósturvísinum næringu og flytja burtu úrgangsefni
Hvað gerist við innri frumumassa á 2.viku fósturþroska?
Hann sérhæfist
Myndun tvílaga fósturskjaldar (2. Vika fósturþroska)
Hypoblast (forveri innlags) og epiblast (forveri útlags) mynda tvílaga flatan skjöld
Gastrulation (3ja vika fósturþroska)
Umbreyting tvílaga fósturskjaldarins í þrílaga fósturskjöld: innlag (endoderm) > útlag (ectoderm) > miðlag (mesoderm) >
Innlag (endoderm) verður að
meltingarvegi
útlag (ectoderm) verður að
húð og taugakerfi,
miðlag (mesoderm) verður að
vöðvum, beinum og bandvef
Hvernig myndast miðlagið? (3ja vika fósturþroska)
Í miðju epiblastinu myndast dæld og síðan frumrák. Það gerist þannig að frumur í epiblastinu færa sig niður og á milli epiblat og “eggsins”
Hvenær gerast fyrstu stig taugaþroskans?
Í 3ju viku fósturþroska
Hvenær verður myndun munn- og endaþarmssvæða
Á 3ju viku fósturþroska
Hvað er eina svæðið þar sem innlag og útlag snertast?
munn- og endaþarmssvæði
Hvenær verður myndun taugafrumna frá útlagi?
Í 3ju viku fósturþroska
Hvenær tekst framhluti taugapípunnar að þroskast í heila?
Í 3ju viku - myndast