Saman Flashcards
1
Q
vinirnir eiga vel saman
A
þeir hæfa hvor öðrum vel
Litirnir í stofunni eiga ágætlega saman.
2
Q
eiga íbúðina saman
A
vera eigendur hennar í sameiningu
3
Q
(nemendur) koma saman
A
nemendur mynda samkomu, mætast í hóp
Læknar spítalans komu saman til fundar.
Fjöldi manns var saman kominn í miðbænum.
4
Q
koma sér saman um (skipulagið)
A
gera með sér samkomulag um skipulagið
Nemendurnir gátu ekki komið sér saman um skemmtidagskrána.
5
Q
(þeim) kemur (vel) saman
FRUMLAG: ÞÁGUFALL
A
samkomulag þeirra er
Bræðrunum tveimur hefur alltaf komið illa saman.
6
Q
koma saman (ræðu)
A
setja saman, semja ræðu