Öndun Flashcards
Hvað af eftirtöldu á við þegar sjúklingur er með sarpmaska?
a. Ekki á að gefa súrefni lægra en 10 L/mín
b. Er hentugt fyrir sjúkling sem þarf lágt flæði af súrefni og andar mikið með munni
c. kallast stundum rakatjald/rakamaski
d. Sarpur (poki) á alltaf að vera flatur
a. Ekki á að gefa súrefni lægra en 10 L/mín
Sjúklingur er með COPD (langvinna lungnateppu), fyrirmæli liggja fyrir að mettun eigi að vera 88-90%. Fyrirmæli um súrefnisgjafir liggja fyrir í Therapy og fær hann 2 L súrefni á súrefnisgleraugu. Súrefnismettun er 95%.
Ættiru að halda áfram súrefnisgjöf eða auka/minka?
Það ætti að lækka súrefni, stefna að fyrirmælum um viðmiðunarmörk súrefnismettuna sem voru 88-90%.
Hvað er hægt að gefa sjúklingi marga lítra af súrefni þegar hann fær hefðbundin súrefnisgleraugu?
6L.
Hvenær á að gefa raka með súrefnisgjöf?
4L.
High-flow súrefnisgleraugu
Gefa súrefnisstyrk 39-98%, það er súrefnisgjöf frá 6-15 l/min.
Rakamaski/rakatjald (e.face tent).
Hægt er að gefa 4-8 L (30-50%) súrefni.
Súrefnismaski – einfaldur.
Gefur allt að 40-60% súrefnisstyrk, 5-8 L/min.
-Lágmarks flæði eru 5 l/min.
Sarpmaski (e.nonrebreather mask).
- Er notaður fyrir háflæðissúrefnisgjöf þar sem hann gefur allt að 10-15 l/min (80-100%) súrefni.
- Gæta þarf að sarpur/poki sem tengist súrefnismaska sé vel útfylltur. Oftast notað í bráðaaðstæðum.
Einkenni súrefnisskorts. (10)
- Blámi, -hraður HR, -lækkuð mettun,
- hröð og grunn öndun, -andþyngsli, -óróleiki,
- svimi, -slappleiki, -nasavængjablakt,
- notkun hjálparvöðva.