Kafli 13 Flashcards
Sifjar
Fjölskyldubönd eða ættartengsl
Hjúskapur
Ævilangt og algert samband tveggja einstaklinga, byggt á loforði þeirra beggja, gefnu fyrir fulltrúa hins opinbera, veraldlegum valdsmanni eða presti
Hjónvígsluskilyrði (5)
18 ára (hægt að fá undanþágu hjá dómsmálaráðuneytinu(
Lögráða
Skyldleiki hjónaefna má ekki vera í beinan legg né systkin
Kjörforeldri og kjörbarn mega ekki giftast hvort öðru nema ættleiðing sé felld niður
Ekki má vígja mann eða konu sem er í hjúskap (ef hjónaefni hafa verið áður í hjónabandi má ekki vígja þau nema fjárskiptum hjónaefnis og fyrri maka sé lokið eða séu í opinberum samskiptum)
Löggiltir vígslumenn (3)
Prestar
Forstöðumenn skráðs trúfélags
Borgaralegir vígslumenn
Þeir kanna hjónavígsluskilyrðin
Krefjast vottorðs frá tveimur svaramönnum sem ábyrgjast að enginn lagatálmi sé á hjúskapnum
Hjónavígslan sjálf (4)
Hjónavígsla á að fara fram í viðurvist tveggja votta
Vígslumaður þarf að spyrja hjónaefnin hvort í sínu lagi hvort þau vilji eigast
Verða hjónaefnin að segja já við því
Vígslumaður þarf síðan að lýsa því yfir að nú séu fram komin hjón
(Dómur um giftingu á Austruvelli)
Réttindi og skyldur hjóna
Hjón eru jafnrétthá (Bera jafnar skyldur gagnvart hvort öðru og börnunum sínum. Eiga að sýna hvort öðru trúmennsku, stuðning og gæta sameiginlegra hagsmuna heimilisins og fjölskyldunnar
Hafa sömu skyldu til að framfleyta heimilinu (með öflun fjármuna eða vinnu á heimilinu)
Framlag hvors um sig telst jafn verðmætt
Fjármál hjóna skiptast í…(3)
Hjúskapareignir
Séreignir
Sameignir
Hjúskapareignir
Eignir sem A og B eiga í sitthvoru lagi en þegar að þau skilja eignast þau 50/50
Séreignir
Skiptast ekki við skilnað
Til þess að eign skiptist ekki við skilnað þá þarf að skrá það sem séreign fyrir skilnað
Séreignir stofnast með eftirfarandi hætti…(3)
Kaupmáli
Arfur
Gjöf
Sameignir
Það sem er keypt saman t.d. íbúð
Skiptist 50/50 við skilnað
Kaupmáli varðandi séreign
Þegar að samningur er gerður um séreignir einstaklinganna
Kaupmálinn skal kveða á um það samkomulag sem hefur náðst milli einstaklinganna hvaða séreignir eru
Gildur kaupmáli um séreign er bindandi fyrir…
Hjón
Erfingja þeirra
Skuldheimtumenn
Til þess að kaupmáli um séreign sé gildur þarf að fylgja þessum reglum:
Bæði hjón þurfa að undirrita hann með tveimur vottum eða hjá lögmanni/sýslumanni
Það þarf að skrásetja kaupmálann í kaupmálabók hjá sýslumanni
Ef að kaupmáli varðar fasteign eða aðrar skráðar eignir þarf líka að þinglýsa honum
(Kaupmáli er ekki gildur fyrr en við skráningu)
Það er hægt að binda kaupmála með ýmsum skilyrðum, t.d.:
Að hann gildi ekki ef að hjón eignast sameiginlegan skylduerfingja
Að eign sé séreign á meðan bæði eru á lífi en hlíta reglum um hjúskapareign ef annaðhvor einstaklingur fellur frá
Arfur eða gjöf sem séreign
Sá sem gefur gjafir eða skilur eftir sig erfðaskrá getur ákveðið hvort að gjöfin sé séreign aðilans sem fær gjöfina/arfinn eða ekki
Þegar að þetta er arfur þá þarf að vera ljóst á erfðaskránni en það þarf engin skrifleg gögn þegar um gjöf er að ræða (sá sem gefur gjöf getur þó skrifað yfirlýsingu eða gjafabréf til að staðfesta)
Ráðstöfunarréttur hjóna á eignum sínum
Maki hefur einn ráðstöfunarrétt á sínum eignum nema sbr. kafla um fasteignir ef um fasteignir er að ræða
Ef að einstaklingur verður fyrir því að makinn rýri verðgildi eigna sinna þá gæti einstaklingurinn átt rétt á uppbótum ef að eignum er síðar skipt til helminga
Hagnýtara ákvæði: Hvorugt hjóna getur án samþykkis maka veðsett, selt eða leight húsnæði, búslóð eða annað lausafé sem er ætlað sem bústaður fyrir fjölskylduna, notað til atvinnurelstrar fyrir annað hjóna eða bæði eða muni sem ætlaðir eru til nota á þessum stöðum
(Þetta á við sama hvort eignin sé séreign eða hjúskapareign)
Ef að samningur er gerður án samþykkis maka er mögulegt að rifta honum með dómi
Skuldaábyrgð: Hjón
Hjón bera hvort um sig ábyrgð á sínum skuldum
Annað hjóna getur ekki skuldbundið hitt
Undantekningar vegna skulda til heimilishalds og skattskulda sem stofnast í hjúpskapnum ef hjónin telja fram sameiginlega
Meginreglan er að hjón eru varin gegn kröfum sem eru þannig til orðnar að maki tekur lán eða skuldbindur sig á einhvern annan hátt
Skuldaraviðurkenning
???
Gjafir: Hjón
Venjulegar gjafir eru í lagi og engir samningar sem fylgja því
Flutningur mikilla verðmæta (hús) verður að fara fram samkvæmt skriflegum samningi og þinglýsingu
Það þarf að gera kaupmála til þess að eign verði að séreign, ef að gjöf er ekki lýst sem séreign telst hún til hjúskapareignar
Oftast er markmiðið með svona eignatilfltuningi að „bjarga“ verðmætum undan kröfum
(T.d. ef að annað hjónanna rekur fyrirtæki þá er þetta leið til að koma í veg fyrir að íbúðin verði tekin með í uppgjöri vegna gjaldþrots)
Skilnaður skiptist í…(2)
Skilnaður að borði og sæng (skabos)
Lögskilnaður
Áður en skilnaður verður þurfa hjón að ákveða…
Hvernig forsjá barna verður háttað og meðlag
Hvort að annar aðilinn fái greitt úr lífeyri hins
Skipting eigna og skulda
Héraðsdómari getur skipað skiptastjóra til að skipta eignum hjóna samkvæmt lögum ef hjón eiga í ósættum með skiptingu