5. Kafli Flashcards
Hvað eru skyntaugar?
Taugar sem flytja boð til heilans
Hvað eru hreyfitaugar?
Taugar sem flytja boð frá heila
Hvað er mænan u.þ.b. margir cm?
45cm
Mænan er…
Tengibraut fyrir taugaboð til og frá heila
Meðfædd taugaviðbrögð:
Sársaukaviðbragð og sogviðbragð
Lærð taugaviðbrögð:
Að ganga, hjóla, hlaupa o.s.fr.
Skammtímaminni
Þar geymum við það sem við hugsum hverju sinni
Langtímaminni
Þar geymum við atburði, tungumál og þekkingu sem við höfum lært
Úr hverju er taugakerfið?
Taugafrumum
Hvað er taugakerfið?
Kerfi milljarða taugafrumna sem flytja taugaboð
Hvert berast taugaboðin?
Milli taugafrumna eða til vöðva
Hvað mynda heilinn og mænan?
Miðtaugakerfið
Hvað er ósjálfrátt taugakerfi?
Taugakerfi sem starfar án þess að viljinn komi þar nærri
Í heilanum eru…
Hugsanir okkar, tilfinningar, vitund og minni
Í hvað skiptist heilinn?
Í stóra heila, litla heila og heilastofn
Hvað er í berki stóra heilans?
Mismunandi starfssvæði
Dæmi um taugafrumur í berki stóra heilans
Sjónsvæðið, málsvæðið og hreyfisvæðið
Hvað tekur heilinn stöðugt á móti og sendir frá sér?
Aragrúa taugaboða
Hvað eru skynboð?
Þau boð sem berast inn til heilans og hreyfiboðin berast frá honum
Hvað er í mænunni?
Tengingar milli mjög margra taugabrauta
Taugaviðbrögð koma fram sem…
Hreyfingar sem verða án þess að við vitum af þeim
Sársaukaviðbragðið er þegar…
Við drögum snöggt að okkur líkamshluta sem er í hættu á að skaðast
Dæmi um kvilla sem byggjast á óeðlilegri starfsemi í heila
Lesblinda, ofvirkni og flogaveiki
Hvað stafar slag (heilablóðfall) af?
Blóðtappa sem veldur stíflu í æð í heila eða af blæðingu úr æð í heilavef
Hvað stafar heilabilun af?
Mjög margar taugafrumur deyja í tilteknum hlutum heilans
Hvað skaðar mænuskaði af?
Oftast af því að taugabrautir rofna þannig að fólk missir tilfinningu og hreyfigetu í þeim hlutum líkamans sem taugabrautirnar náðu til áður
Hvar er lyktarskynið okkar staðsett?
Í efri hluta nefholsins
Fimm grunngerðir bragðs
Sætt, súrt, salt, beiskt og bragðfylling
Hvað gerist þegar við borðum?
Bragð og lykt af matnum renna saman í eina heild
Hvað greina sérstöku skynfærin í húðinni?
Híta, kulda, snertingu þrýsting og sársauka
Hvaða skilningarvit flytur okkur flest skynþrif?
Sjónin
Hvað eru u.þ.b. Margar milljónir sjónskynfrumna í sjónu beggja augna?
250milljónir
Hvað gerist þegar ljósið brotnar í glærunni og í augasteininum?
Skörp mynd fellur á sjónuna
Hvað gerist þegar ljós fellur á skynfrumur augnanna?
Þá berast taugaboð til sjónsvæðisins í heilanum og þar er unnið úr þeim og mynd verður til
Hvaða hluti sjónunnar gefur skörpustu myndina?
Miðgrófin
Hvenær notum við miðgrófin?
Þegar við beinum augunum að litlum fleti, til dæmis við lestur
Hverjar eru helstu tegundir sjóngalla?
Nærsýni, fjarsýni og sjónskekkja
Hvernig bætir maður sjóngalla?
Með því að nota gleraugu, snertilinsur eða fara í leysiaðgerð
Mikill hávaði getur…
Skemmt skynfrumurnar í eyrunum
Hvað stafar oft af skertri heyrn?
Hávaða
Hvað er í jafnvægisskynfærunum í innra eyranu?
Skynfrumur sem senda boð um breytta stöðu og hreyfingu höfuðs
Of mikil áreiti á jafnvægisskynfærin getur valdið…
Svima, bílveiki, flugveiki og sjóveiki
Hvað er hormón?
Efni sem bera boð um líkamann milli frumna og mismunandi líffæra
Hvar myndast hormón?
Í innkirtlum, t.d. í heiladingli, skjaldkirtli, nýrnahettum, brisi og kynkirtlum
Hvað er heiladingull?
Yfirkirtill líkamans, stjórnar því hversu mikið myndast af hornómum í ýmsum öðrum kirtlum
Hverju stafar sykursýki?
Stafar af skorti á hormóninu insúlíni