Tíðahringurinn - Jens Flashcards
Hvaðan kemur GnRH?
Undirstúkunni
Hverju stýrir GnRH?
Seyti LH og FSH
Hvaða kemur LH og FSH?
Gonadotroph fr. í fremri heiladingli
Hvernig er GnRH losað og af hverju skiptir það máli?
- Losað púlserandi
- Ef það er stöðugt hár skammtur afnæmist GnRH viðtakinn og LH og FSH losun minnkar
- GnRH agonista má því nota til að meðhöndla endometriosu eða hafa stjórn á tímasetningu eggloss
Áhrif estrógens á LH og FSH seytun.
Hátt estrogen
- eykur losun LH (sbr. lok eggbúsfasa -> egglos)
Lágt estrogen
- dregur úr losun LH
Hvernig virkar pillan?
Stöðugt magn estrogens í blóði
- > ekki toppur í LH seyti
- > ekki egglos
Áhrif prógesteróns á LH og FSH.
Hátt prógesterón hindrar losun FSH og LH
- sbr. eftir egglos svo ekki verði þroskun fleiri eggbúa og annað egglos
Hvenær hefur fjöldi eggbúa náð hámarki?
Á 2. trimester
Þrír fasar eggjastokka.
Eggbúsfasi (follicular phase)
Egglos (ovulation)
Gulbúsfasi (luteal phase)
Hvaða frumur eru í eggbúi og hvað verkar á þær?
Theca fr.
- LH -> androgen
Granulosa fr.
- FSH -> androgen í estrogen
Eggbúsfasi. Hvað er hann langur?
Mislangt en 14 dagar í 28 daga tíðahring
Eggbúsfasi. Hvað gerist?
Eggbúin stækka og þá eykst estrógenmyndun og þau mynda inhibin.
Hormónin hafa negative feedback á seytun FSH og þá lifir aðeins hæfasta eggbúið sem heldur áfram að mynda estrógen og inhibin.
Hvernig verður egglos?
Styrkur estrógens á eggbúsfasa nær þröskuldi sem veldur LH toppi og svo gerist 3:
- Theca fr. losa andrógen í auknum mæli
- Granulosa fr. mynda prógesterón
- Hækkun í FSH seytun
LH, FSH og prógesterón örva svo ensím sem brjóta egginu leið úr eggbúinu.
Gulbúsfasi. Hvað er hann langur?
14 dagar ALLTAF!
Hvað gerist í gulbúsfasa?
Þegar egglos hefur orðið mynda theca og granulosa fr. gulbú.
LH seyti heldur áfram og lætur granulosa fr. losa progesteron svo það er hátt og bælir LH og FSH og stuðlar að því að gulbúið hrörnar og deyr.
- þá hættir framleiðsla progesteron og estrogen