Vökvar, elektrólýtrar og vökvagjafir í æð. Flashcards
Jón er að fá í æð Glúkósa 5% með 40 mmol af Na+ og 20 mmól af K+. Það eru 200 ml eftir af pokanum. Kalíum gildið hans á blóðprufu er 5,4 (ofgnótt Kalíums). Fyrirmæli læknis er að setja upp Glúkósa 5% án elektrólýta. Myndirðu skipta um poka….?
Já.
Er inf. Kabiven hypertonísk lausn?
já
Hvert af eftirtöldum atriðum geta bent til vökvasöfnunar með upphleðslu á Na+ í blóði? (Fleiri en 1)
a. veikur púls
b. hár blóðþrýstingur
c. lágur blóðþrýstingur
d. sterkur og hoppandi púls
e. mæði
b. hár blóðþrýstingur
d. sterkur og hoppandi púls
e. mæði
2 staðreyndir um kolloid lausnir?
- Þær flytjast ekki yfir himnu háræða.
2. Þær haldast í því hólfi sem þær eru settar í.
Einstaklingur sem fær meiri vökva inn í líkamann en hann tapar á einum sólarhring er sagður vera:
Í jákvæðu vökvajafnvægi
Eru Inf. Glúkósa 10% og Inf. Glúkósa 50% hypótónískar lausnir?
Rangt.
Má gefa K+ þykkni óblandað í æð?
Nei það má aldrei gefa þykkni óblandað.
Hjúkrunarfræðingur sem er að undirbúa og gefa vökva í æð, þarf að athuga nokkra þætti áður en vökvagjöf getur hafist, hvað af eftirfarandi getur átt við? (4)
1 .Þarf að meta hvort það sé vökvi undir húð
- Athugar að ekki sé loft í vökvasetti
- Gengur úr skugga um að sjúklingur hafi ekki ofnæmi
- Athugar að það renni frítt í æðalegg
Jóna er 105 kg og 165 cm. Þú tekur hjá henni lífsmörk sem eru: Púls 120 sl/mín og 92/52 mmHg. Þvagútskilnaður er um 50 ml/klst. Hvað er líklegt að hrjái hana…….
a. Hækkun á kalíum
b. Hægðartregða
c. Vökvaskortur
d. Vökvasöfnun
c. Vökvaskortur
Sjúklingur á að fá Inf. RA á hraðanum 70 ml/klst. Það er ekki laus vökvadæla á deildinni þannig að vökvinn er látinn renna frítt. Hvað á hann að fá marga dropa/mín?
23 dr/mín.
Einkenni vökvaskorts
- Lágur blóðþrýstngur og hraður hjartsláttur.
- Lítill þvagútskilnaður
- Þyngdartap.
Einkenni vökvaþurrðar
- Svimi, slappleiki, mikill þorsti.
- Þurrar slímhúðir.
- Seinkuð háræðafylling.
- Einkenni ofgnóttar natríums.
Einkenni vökvasöfnunar
- Hraður hjartsláttur, skoppandi púls.
- Blóðþrýstingur hækkar í fyrstu.
- Bjúgur.
- Þyngdaraukning.
Einkenni ofvökvunar
- Aukinn heilabjúgur, höfuðverkur, persónuleikabreytingar, breytinga á meðvitund.
- Ógleði, uppköst, vöðvakrampar.
- Einkenni skorts á natríum.