Glærur Flashcards
Á hvaða formi geyma fitufrumur í undirhúðinni mikla orku?
Triglycerids
Hvað er Leukemia
Hvítblæði
Eyðufylling: Húðin myndar _______ sem er mikilvægt fyrir calcium búskap og beinmyndun.
vítamín D3
Hvers konar kirtlar eru Brunnerskirtlar í skeifugörn?
Greinóttir pípukirtlar
Tekur blóð þátt í stjórn á homeostasis?
Já.
Hvert er ysta lag húðarinnar?
Epidermis (yfirhúð)
Hvað er hematocrit?
Rúmmál rauðra blóðkorna í blóðsýni.
Nefndu þrjár gerðir stoðkerfa í frumunni.
- Intermediate filament (hornþræðir)
- Aktín þræðir (örþræðir)
- Microtubuli (örpíplur)
Hvað er það sem stuðlar að hreyfanleika bifhára?
Motorpróteinin dynein sem tengja microtubuli bifháranna saman.
Hverju er verið að lýsa? - Allar frumurnar ná niður að grunnhimnunni en einungis sumar ná alla leið upp á yfirborðið.
Sýndarlagskiptri bifhærðri stuðlaþekju
Rétt/rangt: Krabbameinsfrumur nýta sér blóðið til ferðalaga milli líffæra.
Rétt.
Eyðufylling: _____ gefa frumunni mekanískan styrk þannig að hún þoli betur utanaðkomandi álag.
Intermediate filament (hornþræðir)
Í hvaða fjögur lög skiptist epidermis (yfirhúð)?
- Basal layer (stratum basale)
- Prickle cell layer (stratum spinosum)
- Granular layer (stratum granulosum)
- Keratin layer (stratum corneum)
Eyðufylling: ______ kirtlar ná ekki út á yfirborð en geta losað afurðir sínar (oftast hormón) út í blóðrásina.
Endocrine (innkirtlar)
Hvers konar þekja finnst í nýrnapíplum og kirtilgöngum?
Einföld teningsþekja.
Hvar má finna einfalda stuðlaþekju með bifhárum?
Í eggjaleiðurum
Interfasi samanstendur af þremur fösum, nefndu þá.
G1 + S + G2 = Interfasi
Rétt/rangt: Breytiþekja finnst í þvagblöðru og brisi.
Rangt, hún finnst eingöngu í þvagblöðru.
Nefndu 5 mismunandi gerðir RNA.
- mRNA: messenger RNA
- rRNA: ribosomal RNA
- tRNA: transfer RNA
- snRNA: small nuclear RNA
- snoRNA: small nucleolar RNA
Hvert er stærsta líffæri líkamans?
Húðin
Hvaða þekju er verið að lýsa? - Sérhæfð þekja sem þolir mikið álag og getur varist skaða frá eiturefnum í þvagi.
Breytiþekju
Lýstu frymisnetinu í einni setningu:
Himnubundnar píplur og pokar sem ná frá kjarna og út í umfrymið
Keratinocytar eru afkomendur hvaða fruma?
Basalfruma
Á hvaða formi eru slímkirtlar sem liggja út í þvagrásina, auk sebaceous glands (fitukirtlar í hársekk)?
Einfaldir acinar kirtlar
Eyðufylling: Goblet frumur eru _______ .
Einfrumukirtlar.
Skilgreindu apoptosis.
Stýrður frumudauði, undir skilvirkri genastjórnun.
Eyðufylling: Án hvatbera væru lífverur háðar ________ til myndunar á ATP.
loftfirrðri öndun
Hversu margir litningar eru í mannafrumum?
46 litningar, 23 litningapör.
Lýstu papillary layer dermis (leðurhúðar).
Lausgerður bandvefur sem inniheldur kollagen og elastíska þræði.
Nefndu tvær gerðir svitakirtla.
- Eccrine kirtlar
- Apocrine kirtlar
Eyðufylling: ______ ákvarða staðsetningu himnu-bundinna líffæra og stjórna innanfrumuflutningi.
Microtubuli (örpíplur)
Hvaða þættir eru það sem mynda saman hið eiginlega keratín (hornþræði)?
Tonofilament og keratohyaline
Eyðufylling: Þekja öndunarfæra og eggjaleiðara inniheldur _______.
Bifhár (cilia)
Hvers konar þekja finnst m.a. í munnholi, koki, vélinda, endaþarmi, leghálsi, leggöngum og húð?
Lagskipt flöguþekja
Hverju er verið að lýsa? - Frumulíffæri sem tekur við próteinum og fitusýrum frá frymisnetinu á leið þeirra út úr frumunni eða í frumuhimnuna. Þar fer fram sortering, sykrun og pökkun próteina og fitusýra.
Golgikerfinu
Skilgreindu: Frumulínur
Ódauðlegar (immortalized) frumur sem hægt er að nýta til ýmissa rannsókna
Hvaða frumur mynda keratínþræðina (tonofilament)?
Keratinocytar
Þekjuvefir - uppruni: Hvað tilheyrir ectoderm (útlagi)?
Húð, mjólkurgangar, op líkamans (munnur, nef, endaþarmsop)
Eyðufylling: ______ rauðra blóðkorna er ábyrg fyrir disklaga formi þeirra.
Stoðgrind
Eyðufylling: Lýsósóm innihalda ca. ___ mismunandi niðurbrotsensím sem virkjast við ________.
- 50
- lágt sýrustig.
Hvort eru það eccrine eða apocrine svitakirtlar sem framleiða svita með háu lípíð innihaldi?
Apocrine svitakirtlar
Hvert er hlutverk vöðvaþekjufrumna?
Samdráttur
Hverju er verið að lýsa? - Frumulíffæri sem aðskilur heilkjörnunga frá dreifkjörnungum. Inniheldur erfðaefnið (DNA) sem myndar litningana.
Kjarnanum
Nefndu allar gerðir lagskiptrar þekju.
- Lagskipt flöguþekja
- Lagskipt teningsþekja
- Breytiþekja
- (Sýndarlagskipt bifhærð stuðlaþekja)
Hverjir eru kostir frumuræktana úr ferskum vef (primary cell culture)?
- Endurspegla oft uppruna sinn
- Verða sjaldnast brenglaðar eða illkynja
Hvaða frumur eru af langstærstum hluta í yfirhúðinni?
Keratinocytar
Hver er helsta staðsetning ríbósóma?
- Frí ríbósóm í umfrymi
- Ríbósóm tengd frymisneti
Í hvaða þrjú megin lög skiptist húðin?
- Epidermis (yfirhúð)
- Dermis (leðurhúð)
- Hypodremis (undirhúð)
Gangakerfum útkirtla er hægt að skipta í tvo flokka, nefndu þá.
- Einfaldir gangar
- Greinóttir gangar
Úr hverju er keratohyaline myndað?
Próteinunum cysteine og involucrin
Hvaða lag í húðinni inniheldur stórar æðar og taugar, fitufrumur og virkar sem einangrun, orkkuforði og stuðpúði?
Undirhúðin (hypodermis)
Til hvers henta ljóssmásjár?
Til að skoða:
- uppröðun og tengsl frumna
- stærð og lögun frumna
- hlutfall kjarna og umfrymis
Hvaða prótein má finna í plasma?
t.d. albumin, globulin og fibrinogen.
Eyðufylling: ______ kirtlar losa afurðir sínar út á yfirborðið.
Exocrine (útkirtlar)
Hvaða kirtlar hafa ganga með lagskiptri teningsþekju sem opnast ofan til í hársekki?
Apocrine svitakirtlar
Hvert er hlutverk bifhára í öndunarvegi og eggjaleiðara.
Flytja slím upp öndunarveginn.
Flytja hið frjóvgaða egg í átt að leginu.
Reticulocytes eru forverar hvaða frumna?
Rauðra blóðkorna
Nefndu fjögur skynfæri húðar.
- Lausir taugaendar
- Pacinian corpuscle
- Meisner’s corpuscle
- Ruffinis corpuscle
Hver eru hlutverk undirhúðar (hypodermis)?
Einangrun, orkuforði, stuðpúði.
Nefndu tvær tegundir frumudauða.
Necrosis: ósértækur frumudauði
Apoptosis: stýrður frumudauði
Litni (chromatin) er samsett úr?
DNA og histónum
Hvers konar kirtla má helst finna í ristli og smáþörmum?
Einfalda pípukirtla
Hverju er verið að lýsa? - Langar örtítur, óhreyfanlegar. Byggðar af actinþráðum og tengipróteinum. Hjálpa til við frásog.
Stereocilia.
Fruman er í raun einungis tvílitna í einum fasa, hver er hann?
G1
Eyðufylling: _____ sjá um þýðingu mRNA í prótein.
Ríbósóm
Hvert er hlutverk taugaþekjufrumna?
Skynjun
Hvað greina ruffinis corpuscle í húð?
tog og þrýsting
Hverstu stórt hlutfall er massi blóðs af líkamsmassanum?
7-8% líkamsmassans
Lýstu holocrine útskilnaðarmáta kirtilfruma.
Frumur rofna og deyja þegar seytunin losnar út úr frumunni.
Eyðufylling: Motorprótein sem kallast ______ tengja örpíplurnar saman og stuðla að hreyfanleika bifháranna.
dynein
Hvað er Carcinoma
Krabbamein í þekjuvef
Hvað er serum?
Plasma án storkuþátta.
Eyðufylling: _____ frumur framleiða slím og bifhærðu þekjufrumurnar flytja slímið upp eftir öndunarveginum.
Goblet (bikarfrumur)
Skilgreindu necrosis.
Tilviljunarkenndur dauði, ekki undir sérstakri genastjórn.
Rétt/rangt: kirtlar geta náð niður í undirhúðina.
Rétt.
Hverju er verið að lýsa? - Frumur með hemoglóbín, sérhæfðar til að flytja súrefni og CO2
Rauðum blóðkornum
Hvert er helsta hlutverk melanocyta?
Mynda melanin litarefni húðar og hárs sem verndar gegn útfjólublárri geislun.
Hvernig á myndun ATP sér stað í hvatberum? Lýstu með einföldum hætti.
Með rafeindaflutningi og oxun.
Hverjir eru gallar frumuræktana úr ferskum vef (primary cell culture)?
- Takmarkað aðgengi að vef úr mönnum
- Stuttur líftími kemur í veg fyrir notkun þeirra í langtíma rannsóknum
- Primary frumur sýna misleitni frá einu vefjasýni til annars
Hvað er plasma?
Vatnslausn sem inniheldur m.a. sölt og prótein (albumin, globulin, fibrinogen). 55% af rúmmáli blóðs
Eyðufylling: Í smáþörmum innihalda kirtlarnir m.a. ______ frumur sem framleiða lysozyme
Paneth frumur
Hvers konar kirtla má helst finna í maga?
Einfalda greinótta pípukirtla
Í hvaða vefjum er tilvist vefjastofnfruma best þekkt? Nefndu dæmi.
Í vefjum með hraða ummyndun:
- Blóðvefur
- Þarmar
- Húð/hársekkir
- Brjóskkirtill
Þýðing mRNA yfir í prótein gerist í þremur skrefum sem eru sífellt endurtekin. Hvert er þriðja skrefið?
- mRNA þráðurinn færist áfram um 3 núkleótíð og er nú tilbúinn að taka á móti nýrri tRNA sameind
Eyðufylling: Hvít blóðkorn eru einungis __% af rúmmáli blóðsýnis.
1%
Hvað líður langur tími frá því að basalfruma skiptir sér og myndar Prickle frumur, granular frumur og utanáliggjandi keratínlag? Hvað er tíminn langur hjá psoriosis sjúklingum?
50-60 dagar.
ca. 7 dagar
Með hvaða hætti geta frumulínur orðið til?
- Spontaneous immortalization
- Ectopic immortalization
Í hvaða þrjá flokka er hægt að flokka þekjuvefi eftir fjölda laga?
- Einföld þekja (simple)
- Sýndarlagskipt þekja (pseudostratified)
- Lagskipt þekja (stratified)
Hvað er breytiþekjan í þvagblöðru margra laga?
4-5 laga en þegar hún er þanin sýnist hún vera 2-3 frumulög.
Stoðkerfi frumunnar: Nefndu helstu hluterk.
- Dregur litninga í sundur við mítósu
- Sér um að flutningur á frumulíffærum gangi greiðlega og skipulega fyrir sig.
- Styður við frumuhimnuna sem annars yrði mjög brothætt
- Gerir frumum kleyft að synda eða skríða
Rétt/rangt: Gen geta verið mismunandi mikið tjáð.
Rétt
Hvers konar litun hentar vel til að sýna fram á tilvist gobletfruma?
PAS litun.
Í berkjum öndunarfæra má finna
Sýndarlagskipta bifhærða stuðlaþekju.
Hvað greina pacinian corpuscle í húð?
Þrýsting og titring
Hvaða efni gefa sebaceous glands (fitukirtlar) frá sér?
tríglýceríð og vaxefni
Húðin starfar sem skynfæri, hvaða þætti skynjar hún?
Snertingu, þrýsting, verki, hita og kulda.
Hvaða lög húðarinnar aðskilur grunnhimnan?
Epidermis (yfirhúð) og dermis (leðurhúð)
Nefndu fjórar aðferðir í vefjafræðirannsóknum.
- Frumuræktanir
- Smásjárskoðanir
- Vefjalitanir
- Mótefnalitanir
Hvaða frumur eru teningslaga og sitja á grunnhimnunni sem aðskilur epidermis og dermis?
Basal frumur (grunnfrumur)
Hvernig tengjast basal frumur grunnhimnunni annars vegar og aðliggjandi basalfrumum hins vegar?
Tengjast grunnhimnunni með hemidesmosomum..
Tengjast aðliggjandi basalfrumum með desmosomum.
Hverju er verið að lýsa? - Umlykur frumuna og aðskilur þar með umfrymi frá millifrumuefninu.
Frumuhimnunni
Hvert er helsta hlutverk microvilli (örtíta) og í hvaða frumum eru þær áberandi.
- Auka yfirborð frumunnar.
- Áberandi í frumum sem stunda frásog.
Hvaða frumur innihalda Birbeck granúlur?
Langerhansfrumur
Á hvaða stöðum finnst einföld flöguþekja?
Þar sem passívur flutningur efna og gastegunda þarf að geta átt sér stað.
Rétt/rangt: Hvít blóðkorn fara greiðlega úr blóðrás í vefi.
Rétt.
Í smáþörmum, gallblöðru og meltingarvegi neðan vélinda má finna hvers konar þekju?
Einfalda stuðlaþekju
Eyðufylling: ______ er aðskilinn með grunnhimnu frá undirliggjandi _____.
- Þekjuvefur
- stroma
Eyðufylling: ______ eru u.þ.b. 50% af heildarmassa frumuhimnunnar.
Fitusýrur
Krabbamein: Ef frumumassinn verður ífarandi inn í nálæga vefi er talað um?
Illkynja æxli
Nefndu fjóra útskilnaðarmáta kirtilfruma.
- Merocrine
- Apocrine
- Holocrine
- Endocrine
Eyðufylling: Gölluð prótein eru merkt í ______ og send til eyðingar í próteósomekerfi frumunnar.
Grófa frymisnetinu (ER)
Úr hverju eru frumuhimnan gerð?
Tvöföldu lípíðlagi og próteinum sem sinna samskiptum við umhverfið
Hvernig má lýsa seytunarhluta munnvatnskirtla?
Af þremur gerðum:
- Serous
- Mucus
- Serous/mucus
Hvers konar kirtlar eru exocrine hluti briskirtils og brjóstkirtlar?
Greinóttir acinar kirtlar.
Úr hvers konar þekjufrumum er epidermis (yfirhúðin) að mestu mynduð úr?
Keratínocytum.
Í hvaða frumum á algengasta húðkrabbameinið upptök sín?
Basal frumum - grunnfrumukrabbamein
Eyðufylling: Þrjú núkleótíð í mRNA röðinni eru lesin í einu og kallast _______.
Táknar
Frumuhringurinn og frumudauði
Í þroskaferlinu eru umfram/ónauðsynlegar frumur fjarlægðar með necrosis.
Rangt, umfram/ónauðsynlegar frumur eru fjarlægðar með apoptosis.
Húðin
Hvaða frumur í yfirhúð eru komnar frá monocytum og eru mikilvægar fyrir ónæmiskerfi húðarinnar?
Langerhansfrumur
Vefjafræði
Hvers konar þekja finnst í æðaþekju, mesotheli og lungnablöðrum?
Einföld flöguþekja.
Kirtlar
Eyðufylling: Slímið (mucin) í goblet frumum er gert úr _______.
Próteóglýkönum
Uppbygging frumunnar
Hverju er verið að lýsa? - Helsta orkustöð frumunnar. Þar fer fram myndun ATP sem er helsta flutningsform orku í frumunni.
Hvetberum
Vefjafræði
Hvert er hlutverk þekjuvefjar í húð?
Vörn
Vefjafræði
Hvers konar þekja finnst nær eingöngu í efri öndunarfærum (berkjum)?
Sýndarlagskipt bifhærð stuðlaþekja.
Uppbygging frumunnar
Hvaða tvö frumulíffæri sérhæfa sig í myndun ATP og hafa tvöfalt himnukerfi?
Hvatberar og grænukorn
Uppbygging frumunnar
Hver er algengasti sjúkdómurinn sem tengist lýsósómum og niðurbrots ensímum og af hverju orsakast hann?
Gauchers’s disease. Hann orsakast af stökkbreytingu í geni sem skráir fyrir ensími sem tekur þátt í niðurbroti glycolípíða.
Uppbygging frumunnar
Teldu upp helstu hlutverk frumuhimnunnar.
- Einangrun
- Flutningur efna og rafeinda
- Innfrumun (endocytosis)
- Útfrumun (exocytosis)
- Samskipti við umhverfi
Uppbygging frumunnar
Hverju er verið að lýsa? - Inniheldur ca. helminginn af öllum himnum frumunnar og ca. 10% af rúmmáli hennar.
Frymisnetinu
Inngangur
Krabbamein: Ef frumumassinn helst saman á þeim stað þar sem upphafsvöxturinn verður er talað um?
Staðbundið mein
Húðin
Nefndu tvö megin vefjalög sem finnast í dermis.
- Papillary layer
- Reticular layer
Vefjafræði
Í hvaða fjóra flokka er hægt að flokka þekjuvefi eftir formi fruma.
- Flöguþekja (squamous)
- Teningsþekja (cuboidal)
- Stuðlaþekja (columnar)
- Breytiþekja (transitional)
Kirtlar
Hvar er seytihluti eccrine svitakirtla yfirleitt staðsettur?
Á mörkum leðurhúðar og undirhúðar.
Húðin
Nefndu helstu hlutverk húðarinnar.
- Vörn
- Mekanískur stuðningur
- Viðheldur vökva- og varmajafnvægi
- Tekur þátt í efnaskiptum
- Skynfæri.
Inngangur
Skilgreindu: Vefjastofnfrumur
“Ósérhæfðar” frumur sem finnast í vefjum og geta endurmyndað sjálfa sig og flestar eða allar þær frumugerðir sem finnast í viðkomandi vef.
Húðin
Grunnhimnan tengist dermis í gegnum filament þræði m.a. kollagen VII. Hvaða sjúkdóm valda gallar í þessum festingum?
Epidermolysis bullosa
Uppbygging frumunnar
Rétt/rangt: Allar fitusýrur í frumuhimnunni hafa einn vatnssækinn og einn vatnsfælinn enda
Rétt
Blóðið
Hvaða efni má finna í plasma?
Vatn, prótein, jónir, niðurbrotsefni, gös, hormón, ensím, næringarefni
Húðin
Hvaða frumur mynda melanin?
Melanocytar
Kirtlar
Í stærri göngum í munnvatnskirtlum og svitakirtlum er yfirleitt hvers konar þekja?
Lagskipt teningsþekja
Frumuhringurinn og frumudauði
Eyðufylling: Þéttlitni (heterochromatin) er _____ við eftirmyndun og umritun
óvirkt
Blóðið
Hvaða niðurbrotsefni má finna í plasma?
Urea, creatine og fl.
Kirtlar
Eyðufylling: Í ristli er mikið um slímseytandi ______ frumur.
Goblet frumur
Húðin
Lýstu undirhúðinni (hypodermis)
Lausgerður bandvefur með fitufrumum.
Inngangur
Á hverju byggir notkun ljóssmásjáa?
Mismunandi litunareiginleikum frumu-og vefjahluta
Húðin
Hvað greina Meisner’s corpuscle í húð?
Látíðni titring í vörum og fingurgómum
Vefjafræði
Hvernig er kjarninn í einfaldri teningsþekju?
Hnöttóttur og liggur miðlægt.
Kirtlar
Hvaða kirtlar taka þátt í varmastjórnun líkamans?
Eccrine svitakirtlar
Uppbygging frumunnar
Hvert er stærsta frumulíffæri hverrar frumu?
Frymisnetið
Frumuhringurinn og frumudauði
Hverjir eru hinir tveir apoptósuferlar?
- Extrinsic (gegnum frumuviðtaka Fas og TNF-R)
- Intrinsic (hvatberaháður)
Uppbygging frumunnar
Hverju er verið að lýsa? -Himnubundin frumulíffæri sem innihalda ensím sem taka þátt í niðurbroti próteina, kjarnsýra, kolvetna og lípíða.
Lýsósómum (meltiblöðrum)
Inngangur
Hverjir eru tveir helstu eiginleikar illkynja krabbameinsfruma?
Óheftar frumuskiptingar og ífarandi æxlisvöxtur
Húðin
Nefndu frumur yfirhúðar (epidermis)
Þekjufrumur: Basal frumur og keratinocytar
Melanocytar
Langerhans frumur
Merkel frumur
Uppbygging frumunnar
Hverju er verið að lýsa? - Frumulíffæri sem inniheldur meltingarensím sem virkjast í hinu súra umhverfi sem finnst í því.
Lýsósómum
Kirtlar
Af hverju samanstendur seytihluti eccrine kirtla?
Seytifrumum og myoepithelial frumum
Uppbygging frumunnar
Eyðufylling: Prótein þýðing hefst í _______.
Grófa frymisnetinu (ER)
Vefjafræði
Hvar má finna einfalda teningsþekju?
- Safnpípum í nýrum
- Gangakerfi í munnvatnskirtlum
- Brisi
Frumuhringurinn og frumudauði
Þýðing mRNA yfir í prótein gerist í þremur skrefum sem eru sífellt endurtekin. Hvert er fyrsta skrefið?
- tRNA kemur inn í ríbósóm með nýja amínósýru og sest í A-sæti (amonoacyl tRNA)
Vefjafræði
Eyðufylling: Ytra borð lungna (pleura), hjarta (pericardium) og kviðarhols (peritoneal cavity) er þakið ______ frumum.
Mesothelial frumum.
Blóðið
Rétt/rangt: Rauð blóðkorn hafa stóran kjarna en engin frumulífæri.
Rangt. Rauð blóðkorn innihalda engan kjarna og engin frumulíffæri.
Kirtlar
Hvernig eru slímsekkir í apical hluta goblet fruma losaðir út á yfirborðið?
Með útfrumun.
Kirtlar
Hverju er verið að lýsa? -Himna seytikorna rennur saman við apical hluta frumuhimna og innihald losnar út með exocytosu (útfrumun).
Merocrine útskilnaðarmáta
Frumuhringurinn og frumudauði
Þýðing mRNA yfir í prótein gerist í þremur skrefum sem eru sífellt endurtekin. Hvert er annað skrefið?
- Það myndast peptíðtengi milli tveggja amínósýra með ensíminu peptidyl transferasa
Húðin
Hvert er ysta lag epidermis (yfirhúðar) og hver eru einkenni þess?
Stratum corneum (keratin layer) er ysta lagið og er þétt próteinlag myndað af keratíni (hornþráðum)
Vefjafræði
Þekjuvefur - uppruni: Hvað tilheyrir mesoderm (miðlagi)?
Æðaþekja, klæðning brjósthols og kviðarhols.
Frumuhringurinn og frumudauði
Eyðufylling: Dreiflitni (euchromatin) er ______ við eftirmyndun og umritun
virkt
Uppbygging frumunnar
Eyðufylling: _____ flyst inn í hvatbera og er oxað af súrefni yfir í CO2 og H2O. Þetta ferli myndar ___ sinnum meira ATP en myndast með glýkólýsunni einnin sér.
- Pyruvat
- 15
Kirtlar
Hvar finnast apocrine svitakirtlar helst?
Í holhöndum, við kynfæri, brjóst og kringum endaþarmsop.
Inngangur
Ef krabbbamein hefur dreifst frá stað þar sem upphafsvöxtur átti sér stað til fjarlægra líffæra er talað um?
Meinvarpandi æxli
Vefjafræði
Lýstu samsetningu bifhára.
Eru mynduð af örpíplum (microtubules) sem eru langir rörlaga strúktúrar og vaxa út úr microtubule organizing center MTOC í basal body.
Frumuhringurinn og frumudauði
Nefndu aðal svipgerðareinkenni apoptosis.
- Heterochromatin (þétt litni)
- Nuclear fragmentation (brotkjarnar)
- Plasma membrane blebbing (himnublöðrur)
- Samdráttur/rýrnun fruma
- Apoptoic bodies (upplausn frumunnar í litlar blöðrur)
Vefjafræði
Hverju er verið að lýsa? - Þekur venjulega smærri ganga sem sinna seytun eða upptöku efna.
Einfaldri teningsþekju.
Kirtlar
Seytunarhlutum útkirtla er hægt að skipta í þrjá flokka, nefndu þá.
- Pípu (rör) laga
- Acinar (perulaga)
- Pípuacinar