2020 próf Flashcards
Skv. Piaget er æfingaleikur (practice play) þegar börn nota tákn fyrir aðra hluti eins og að láta banana vera síma og tala í hann.
Rétt
Rangt
Rangt
Skv. Mead þá stuðlar hlutverkaleikur að því að barnið læri að þekkja sjálfan sig, hlutverk sitt og stöðu.
Rétt
Rangt
Rétt
Merkið við þau atriði sem sértsaklega einkenna ímyndunarleiki (imaginative play) barna.
a) Börn eru í eltingaleik
b) Allt er rétt
c) Leiðtogi greinir frá reglum leiksins
d) Börn fylgjast með því hvernig önnur börn leika sér
e) Börn lifa sig inn í annan heim og sýna athafnir sem honum tengist
e) Börn lifa sig inn í annan heim og sýna athafnir sem honum tengist
Börn eldri en tveggja ára eru upptekin af sjálfum sér og einkennir það leik þeirra
Rétt
Rangt
Rangt (lýsing á við börn yngr en 2ja ára)
Oft er talað um þrískiptingu tungumálsins eða grunnstoðir málþroskans. Hverjar eru þær?
a) Innihald, framburður og notkun
b) Innihald, mál og notkun
c) Form, framburður og skilningur
d) Form, tjáskipti og tal
e) Notkun, form og innihald
e) notgun, form, innihald
Hvað á ekki við um málþroskaröskun – DLD?
a) Erfiðleikar með að tileinka sér orðaforða
b) Erfiðleikar með setningauppbyggingu
c) Börn með málþroskaröskun eiga oft í erfiðleikum með lestur
d) Málnotkun
e) Erfiðleikar með málfræði
f) Börn með slakan málskilning eru yfirleitt með betri lesskilning
f) Börn með slakan málskilnding eru yfirleitt með betri lesskilning.
Gunna er tæplega 4 ára og segir við mömmu sína „ég leikaði mér“. Þetta er dæmi um:
a) Alhæfingu á beygingu sterkra sagna
b) Barn sem er með slakan málþroska
c) Þágufallssýki
d) Alhæfingu á beygingu veikra sagna
d) Alhæfingu á beygingu veikra sagna
Hver taldi greind og hugsun vera eins og hvert annað líffærakerfi þar sem hlutverk greindarinnar væri að laga einstaklinginn að umhverfi sínu með því að melta reynsluna?
a) Jean Piaget
b) Sigmund Freud
c) Howard Gardner
d) Erik Erikson
a) Jean Piaget
Þú ert að fara að gera Finnström þroskamat á nýbura. Hvert af eftirfarandi fullyrðingum um líkamlegan þroska eru þættir sem þú myndir skoða með Finnström þroskamati?
a) Húðrákir á iljum, húðæðar og stærð kynfæra
b) Brjóstkirtilsstærð, fósturfitu og neglur á tám
c) Eyrnabrjósk, húðrákir á iljum og húðæðar
d) Allir svarmöguleikar eru réttir
e) Hár á höfði, fósturfitu og neglur á fingrum
c) Eyrnabrjósk, húðrákir á iljum og húðæðar
Hver eftirfarandi fullyrðingum er ekki rétt um viðbrögð (reflexa) nýbura?
a) Moro viðbragð nær eingöngu til efri hluta líkama
b) Enginn svarmöguleiki er réttur
c) Viðbrögð nýbura eru undir stjórn taugasvæðis undir heilaberki
d) Viðbrögð nýbura er ósjálfráð hreyfing
e) Öll viðbrögð nýbura hverfa að jafnaði innan eins árs.
a) Moro viðbragð nær eingöngu til efri hluta líkama (skoða)
Í hvaða tvo þætti skiptast skemu, sem skipa stóran sess í kenningum Piaget?
a) Samlögun og Aðhæfing
b) Forstig rökhugunsar og skynhreyfistig
c) Aðlögun og Samhæfing
d) Varanleiki hluta og viðbragðþrep
e) Enginn svarmöguleiki er réttur
e) ekkert rétt, skemu skiptast í aðlögun og yfirfærslu
Á hvaða stigi hefur rökhugsun náð fullum þroska og barn nær að hugsa útfrá abstract hugtökum og forsendum, skv. Piaget?
a) Enginn svar möguleiki er réttur
b) Skynhreyfistig
c) Forstig rökhugsunar
d) Hlutbundin rökhugsun
e) Formleg rökhgusun
e) formleg rökhugsun
Hver af eftirfarandi fullyrðingum um einkennandi þætti þroska mannsins er ekki rétt?
a) þroska er hægt að skýra út frá mörgum fræðigreinum
b) Enginn svarmöguleiki er réttur
c) Þroski tengist menningu
d) Þroski er línulegt fyrirbæri
e) Þroski getur verið í mörgu samhengi
d) Þroski er línulegt fyrirbæri (skoða)
Hvað er scaffolding í kenningu Vygotsky?
a) Að veita barni þann stuðning sem þarf til að leysa af hendi verkefni sem það gæti ekki óstutt
b) Að veita barni óhóflegan stuðning til að leysa af hendi verkefni og þannig hægja á þroska
c) Að styðja barn í að ná aukinni færni í verkefnum sem það getur óstutt
d) Allir svarmöguleikar eru réttir
e) Að vera til staðar fyrir barn þegar það tekst á við mistök
a) Að veita barni þann stuðning sem þarf til að leysa af hendi verkefni sem það gæti ekki óstutt
Hver af eftirfarandi fullyrðingum um sálfélagslegan þroska er ekki rétt?
a) Enginn svar möguleiki er réttur
b) Skv. kenningu Freud skipta fyrstu 2-3 árin sköpum fyrir mótun persónuleikan og sálfélagslegs þroska
c) Skv. kenningu Erikson hefur fjölskylda, menning og umhverfi lítil sem engin áhrif á sálfélagslegan þroska
d) Í gegnum samhæfingu (synchrony) lærir barn að lesa í tilfinningar annarra
e) Skv. atferlisstefnunni mótast hegðun barna í gegnum herminám.
c) Skv. kenningu Erikson hefur fjölskylda, menning og umhverfi lítil sem engin áhrif á sálfélagslegan þrosk
Eftirfarandi fullyrðingar lýsa almennt góðum siðferðisþroska nema ein þeirra, merkið við hana.
a) Kunna að greina rétt frá röngu
b) Geta tekið afstöðu til siðferðislegra álitamála
c) Samsama sig félagslegu kerfi þar sem allir bera ábyrgð
d) Geta tileinkað sér góð gildi samfélagsins
e) Standa á sama um aðra
f) Allir svarmöguleikar eru réttir
e) Standa á sama um aðra
Hver af eftirfarandi fullyrðingum um siðferðisþroskakenningu Kohlberg er rétt? „Í upphafi siðferðisþroska er einstaklingurinn…“ (fyrsta skeiðið)
… fær um að setja sig í spor annarra
Allir svarmöguleikar eru réttir
… einkum upptekinn af sjálfum sér
… andvígur því að fylgja reglum
… tillitsamur við aðra
… einkum upptekinn af sjálfum sér
Hvað er stórfjölskylda? Merktu við þá skilgreiningu sem er réttust.
Fjölskylda sem er með a.m.k. 6 börn í heimili
Enginn svar möguleiki er réttur
Fjölskylda sem er með að lágmarki 5 í heimili
Fjölskylda sem samanstendur af móður, föður og barni
Fjölskylda þar sem a.m.k. 3 kynslóðir búa saman
Fjölskylda þar sem a.m.k. 3 kynslóðir búa saman
Foreldraskyldur eru bundnar í barnalögum. Þar kemur fram að foreldrum ber að annast barn sitt. Hvað af eftirfarandi lýsir ekki foreldraskyldum skv. 28.gr. laganna?
Foreldrum ber að sjá til þess að barn fái lögmæta fræðslu
Foreldrum ber að sýna barninu umhyggju og hlýju
Allir svarmöguleikar eru réttir
Foreldrum ber að sjá til þess að barn hafi húsaskjól
Foreldrum ber að vernda barnið sitt
Foreldrum ber að sjá til þess að barn hafi húsaskjól
Hvað af eftirfarandi fullyrðingum skýrir best út hugtakið varðveisla (conservation)?
Skilningur á að þó ásýnd hluta breytist þá breytist ekki magn þeirra
Einblínt er á einhvern einn útlitseiginleika hlutar
Skilningur á að hlutir séu óafturkræfir
Skilningur á að magnbundnir eiginleikar breytist
Skilningur á að þó ásýnd hluta breytist þá breytist ekki magn þeirra
Hvert af eftirfarandi fullyrðingum lýsir best öruggum tengslum (attachment) hjá barni skv. rannsóknum Mary Ainsworth?
Barnið bregst ekki við foreldri þegar það kemur
Allir svarmöguleikar eru réttir
Barnið á gott með að skoða umhverfi sitt
Barnið tekur ekki eftir því þegar foreldri þess fer
Barnið neitar að fara frá umönnunaraðila
Barnið á gott með að skoða umhverfi sitt
Að hvaða leyti eru eftirlátir foreldrar ólíkir leiðandi foreldrum? Hver af þessum fullyrðingu lýsir því best?
Hvernig þeir setja barninu mörk
Hvernig barnið fær að tjá sig
Hvernig þeir taka í hugmyndir barnsins
Allir svarmöguleikar eru réttir
Hvernig þeir sýna barninu hlýju
Hvernig þeir setja barninu mörk
Skv. rannsókn Diana Baumrind komu fram 4 einkennandi þættir í uppeldi foreldra. Hvert af eftirfarandi atriðum er ekki eitt þeirra?
Tjáskipti og leiðbeiningar
Þroska Kröfur og tjáskipti
Hlýja og þroska kröfur
Agi og hlýja
Allir svarmöguleikar eru réttir
Tjáskipti og leiðbeiningar (ATH að tjáskipti ER partur af þessum 4 þáttum en EKKI leiðbeiningar)
Hlýja, agi,tjáskipti og þroska kröfur
Hvaða kenning/stefna gengur út frá því að þroski einstaklingsins byggi á innri hvötum og ástæðum?
Hugrænar kenningar
Atferlisstefna
Félagsmenningar kenning
Sálgreining
Sálgreining